
Kvikmyndir eru mikilvægur miðill í samtímanum. Þær eru meðal annars vettvangur fyrir samtal um spurningar sem snerta trú og tilvist manneskjunnar. Þjóðkirkjan hefur veitt kvikmyndaverðlaun á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (www.riff.is) frá árinu 2006. Verðlaunin eru veitt vandaðri kvikmynd sem fjallar um mikilvægar trúar- og tilvistarspurningar og miðlar jákvæðri sýn á manneskju og heim.
RIFF 2011
Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar voru veitt í sjötta sinn á RIFF. Það var kvikmyndin Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson sem fékk verðlaunin. Dómnefndin veitti kvikmyndinni Sögur einnig sérstaka viðurkenningu. Í dómnefnd kirkjunnar voru sr. Árni Svanur Daníelsson, sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sr. Guðni Már Harðarson og Margrét Rós Harðardóttir, listakona.
Verðlaunamyndirnar
- 2011: Eldfjall
- 2010: Á morgun
- 2009: Saman
- 2008: Snjór
- 2007: Listin að gráta í kór
- 2006: Fjórar mínútur
Sérstök viðurkenning
Stikla
Viltu sjá verðlaunamyndirnar?
Verðlaunamyndirnar hafa verið sýndar í nokkrum kirkjum. Upplýsingar um það hvernig má standa að slíkum sýningum veitir Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu (arni.svanur.danielsson (hjá) kirkjan.is).