Umsjónarmaður þessarar heimasíðu Þönglabakkakirkju gerði sig sekan um ósannsögli í kynningu á lummukaffinu eftir messu á Þönglabakka, og biður hlutaðeigendur velvirðingar á því og einkum sóknarprestinn sem át þetta upp eftir honum.
Sannleikurinn er sá að það er ferðafélagið Fjörðungur sem á og rekur skálann að Þönglabakka, eins og greint er frá hér. Hvorki Björgunarsveitin Ægir né Slysavarnafélagið eiga þar nokkurn hlut að máli. Ágóði af kaffisölunni, ef einhver var, rann til viðhalds þessa góða húss og sólpalls. Mun það væntanlega ekki draga úr gleði þeirra sem greiddu fyrir kaffið. Rétt er að nota þetta tækifæri til að minna þau á sem ætla að mæta næsta sumar að gleyma ekki að taka með sér skotsilfur.

Hér er líkast til verið að skrifa undir skuldaviðurkenningu
Kristján Valur Ingólfsson, 30/7 2011
Í miklu blíðviðri var messað á kirkjugrunninum og í kirkjugarðinum á Þönglabakka sunnudaginn 24.júlí. Nær tvöhundruð sóknarbörn komu saman, og áttu langflest ættir að rekja í Fjörður, um langan veg eða skamman.
Kvennakórinn Fjörðurnar söng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur, dóttir hennar Ágústa Dómhildur lék á fiðlu, og Guðrún Birgisdóttir á flautu. Allt eru þetta konur af ætt séra Jóns Reykjalín sem prestur var á Þönglabakka 1863-1888, jafnt þær sem sungu og léku. Karolína Hulda Guðmundsdóttir frá Fitjum í Skorradal, las ritningarlestra, en amma hennar og nafna var stofustúlka hjá sr. Sigurði Jónssyni sem síðastur presta sat Þönglabakka og fór þaðan 1902. Prestarnir Bolli Pétur Bollason og Kristján Valur Ingólfsson önnuðust prestsþjónustu. Að messu lokinni var drukkið lummukaffi við skýlið, þar sem sunginn var fjórradda söngur og Valgarður Egilsson sagði frá byggð og búendum.
Kristján Valur Ingólfsson, 27/7 2011
Um næstu helgi, sunnudaginn 24. júlí kl. 14 verður messað á kirkjugrunninum á Þönglabakka eins og þrjú undanfarin sumur.
Ökumönnum er bent á að ekið er í Fjörður (Hvalvatnsfjörð) út Leirdalsheiði, jeppaveg sem merktur er F 839 og byrjar skammt norðan við Grýtubakka, áður en komið er að Gljúfurá. Ætla þarf rúmlega klukkustund í akstur. Frá bílastæði skammt frá göngubrúnni yfir ána er gengið yfir hálsinn í Þorgeirsfjörð að Þönglabakka. Gangan tekur um það bil klukkustund.
Einnig verður bátsferð frá Grenivík við vægu verði. Lysthafendur setji sig í samband við Þorstein Eyfjörð Friðriksson á Grenivík sem stýrir skipi sínu með farþega í Þorgeirsfjörð.
Eins og fyrr eru það Laufássprestur og Þingvallaprestur, Bolli Pétur Bollason og Kristján Valur Ingólfsson sem annast messugjörðina. Í messunni verður að venju minnst byggðarinnar og ábúendanna og afkomenda þeirra. Það nýmæli er í messunni þetta árið að nú syngur kór kvenna af Fjörðungaættum undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur, organista við Lágafellskirkju í Mosfellsbæ. Þær syngja einnig eftir messu meðan messugestir gæða sér á hinum landsfrægu lummum sem bornar eru fram með messukaffinu og steiktar á staðnum af sömu sérfræðingum í lummusteikingu og undanfarin ár. Ágóði af kaffisölu rennur til Björgunarsveitarinnar Ægis.
Kristján Valur Ingólfsson, 19/7 2011
Langtímaspá norska veðurvefjarins yr.no gerir núna ráð fyrir sólskini, hægum vindi og 14 stiga hita um hádegisbil sunnudaginn 24.júlí á Þönglabakka. Þá verður mikið um dýrðir, bæði á himni á jörðu í Fjörðum!
Kristján Valur Ingólfsson, 15/7 2011
Sóknarpresturinn í Laufási, sr. Bolli Pétur Bollason, hefur óskað eftir því að Þönglabakkamessan 2011 verði að þessu sinni ekki síðasta sunnudag júlímánaðar, heldur þann næstsíðasta. Þar sem ábyrgð helgihaldsins hvílir að fullu á sóknarprestinum hvort sem er í byggðum eða óbyggðum, er sjálfsagt að hlíta úrskurði hans.
Næsta messa á Þönglabakka verður því sunnudaginn 24.júlí 2011 kl. 14.
Kristján Valur Ingólfsson, 4/1 2011
sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Laufási predikaði við messu á Þönglabakka 25.júlí 2010. Predikun hans má lesa hér á vefnum ef smellt er á flipann Predikanir.
Kristján Valur Ingólfsson, 28/7 2010
Messað var í fögru veðri á Þönglabakka á sunnudaginn. Viðstaddir voru alls 98 og áttu margir þeirra ættir að rekja til fyrrum ábúenda í Þönglabakkaprestakalli. Eins og undanfarin ár var dásamlegt lummukaffi á pallinum við skýlið eftir messu og eiga lummugerðarkonurnar sérstakar þakkir skilið fyrir fórnfýsi sína og elskusemi við kirkjugesti. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að viðstaddir hafi sporðrennt um það bil hálfu þúsundi af lummum. Næsta messa á Þönglabakka verður sunnudaginn 31.júlí 2011.
Nokkrar myndir frá messunni eru hér undir flipanum Myndir.
Kristján Valur Ingólfsson, 27/7 2010
Samkvæmt norska veðurvefnum yr.no verður léttskýjað, hægur vindur og 16 stiga hiti á Þönglabakka á morgun, sunnudag, frá hádegi og fram að kaffi.
Kristján Valur Ingólfsson, 24/7 2010
Kirkjugestir á Þönglabakka mega eiga von á góðu veðri til messuhalds á sunnudaginn kemur ef nokkuð er að marka veðurspá. Messa hefst kl. 14 eins og fyrr var boðað. Bent er á þann möguleika að aka og ganga aðra leið en fara með bátnum til baka.
Kristján Valur Ingólfsson, 23/7 2010
Þönglabakkamessan í ár verður sunnudaginn 25.júlí næstkomandi kl. 14. Veðurútlit er gott bæði fyrir sjó og land, þó að kunni að detta dropar.
Ökumönnum er bent á að ekið er í Fjörður (Hvalvatnsfjörð) út Leirdalsheiði, jeppaveg sem merktur er F 839 og byrjar skammt norðan við Grýtubakka, áður en komið er að Gljúfurá. Ætla þarf rúmlega klukkustund í akstur. Frá bílastæði skammt frá göngubrúnni yfir ána er gengið yfir hálsinn í Þorgeirsfjörð að Þönglabakka. Gangan tekur um það bil klukkustund.
Einnig verður bátsferð frá Grenivík kl. 11 með Sjöfn EA.
Laufássprestur og Þingvallaprestur, Bolli Pétur Bollason og Kristján Valur Ingólfsson annast messugjörðina. Hörður Hermannsson leikur forspil á trompet. Benedikt Kristjánsson,tenór og Sergio Coto-Blanco, gítar, flytja stólvers og meiri söng í lok messu. Margrét Bóasdóttir stýrir almennum söng.
Eins og hefðbundið er verður lummukaffi eftir messu við vægu verði.
Hér eru myndir frá messunni síðastliðið sumar.


Kristján Valur Ingólfsson, 21/7 2010