Prédikanir og pistlar
Hér er að finna nýjustu prédikanir og pistla sem Kristján Valur Ingólfsson hefur birt á trúmálavef Þjóðkirkjunnar.
Birtingarhátíð Drottins
Prestar eru sendiboðar sendiboða Guðs. Hlutverk þeirra er sannarlega að breiða út fagnaðarboðskapinn um guðsríkið sem er í nánd, og að boða frið, en þeir eru um leið sendir til að berjast góðu baráttunni.
Kristján Valur Ingólfsson · 6/1 2012
Höfundur tímans
Við höfum fengið dásamlega nýársgjöf. Nýtt ár. Í Jesú nafni. Það merkir að við megum verða samferða sem kirkja, og samferða höfundi tímans allt hið nýja ár til enda, í öryggi, í friði og í kærleika.
Kristján Valur Ingólfsson · 1/1 2012
Hið gamla er nýtt
Maður nokkur spurði nýverið: Er ekki löngu búið að segja allt sem segja þarf í predikun á jólum? Er virkilega hægt að bæta einhverju við eftir tvö þúsund ár? Er þetta ekki bara alltaf sama gamla tuggan?
Kristján Valur Ingólfsson · 26/12 2011
Guð er kærleikur
María og Jósef þurftu að flýja með barnið til Egyptalands. Á þessum dögum þegar Ísland hefur fyrir sitt leyti samþykkt fullveldi Palestínu tryggir sá velgjörningur ekki frið né lífsöryggi barna og foreldra, og alls ekki þeirra sem eru á leið til Betlehem, þó að Ísraelsmenn hafi í gær lokið upp stóra hliðinu sem annars er notað fyrir herinn, svo að rúturnar frá Jerúsalem ættu greiðari aðgang.
Kristján Valur Ingólfsson · 25/12 2011
Yfirskrift aðventunnar er von
Í dag, á fyrsta sunnudegi í aðventu, eru það ekki bara réttlæti og friður sem fallast í faðma, heldur allt þetta: 40 ára afmæli Bústaðakirkju, upphaf aðventu með innreið Jesú til safnaðarins, og jólasöfnun Hjálparstarfsins til að færa þyrstum vatn og opna nýja brunna. Og yfir þessu öllu má skrifa eitt orð með stórum stöfum. Það er orðið VON.
Kristján Valur Ingólfsson · 27/11 2011
Það er von í vatninu
Það er von í vatninu. Það er líka von í öllum fermingarbörnunum sem fyrir skemmstu söfnuðu mörgum milljónum króna til þess að gefa deyjandi fólki líf og von með vatni. ?Þau hafa með því sett af stað læki lifandi vatns í eftirfylgdinni við hina sönnu uppsprettu.
Kristján Valur Ingólfsson · 27/11 2011
Til þjónustu
Það sem okkur er falið er að elska hvert annað og hvíla í elsku Guðs í Jesú Kristi. Þá verða ávextirnir til og Guð les sjálfur þrúgurnar af greinunum, því hann er sá eini sem örugglega þekkir þær og kann að nýta þær.
Kristján Valur Ingólfsson · 18/9 2011
Að elska og fyrirgefa
Hversvegna í ósköpunum er svona mikið gert til þess að firra fólk ábyrgð? Líka á því sem það skammast sín fyrir og ætti að skammast sín fyrir? Hver er orsökin? Það er óttinn við að engin fyrirgefning sé til. Það er óttinn við að horfast í augu við villu síns vegar. Það er óttinn við refsingu. Og óttinn við refsinguna blindar augun svo maður þorir ekki að trúa á fyrirgefninguna. Fyrr en það er ekkert eftir. Hin blinda uppgjöf frammi fyrir vandanum setur mann á hnén.
Kristján Valur Ingólfsson · 4/9 2011