Þorlákskirkja

 

Uppsveitamenn í heimsókn!

Hópur Gnúpverja og Skeiðamanna heimsótti Þorlákskirkju fimmtudaginn 6. ágúst í fylgd Baldurs Loftssonar í grænni rútu sem Þórður Njálsson ók. Þetta var hin skemmtilegasta heimsókn. Sóknarprestur sagði frá kirkjunni og staðnum og lenti satt að segja í vandræðum því að enginn burtfararsvipur var í andlitum fólksins þó erindið væri orðið nokkuð langt. Skemmtileg þessi fróðleiksfýsn sem lifir enn góðu lífi í sveitum landsins. Þegar betur er að gáð sýnist mér vera einnig Hrunamenn meðal gesta. Neðri myndina tók BK en Þórður Njálsson björgunarsveitarmaður á Stokkseyri og rútubílstjóri hina. Myndinar voru teknar í íþróttahúsinu þar sem undirritaður gleymdi sér í kirkjunni en elti fólkið út í íþróttamiðstöð þar sem það dáðist að herlegheitunum.  Smellið á myndirnar ef þið viljið fá þær stærri. BK

 

Baldur Kristjánsson, 7/8 2009 kl. 10.42

     

    Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi RSS