Þorlákskirkja - starfið!
Sunnudagaskólinn hefst á sunnudaginn núna 20. september kl. 11:00 með nýju og spennandi efni. Þær Sigríður Stefánsdóttir og Hafdís Þorgilsdóttir sjá um skólann ásamt sóknarprestinum og Hannesi organista. Sunnudagaskólinn verður annan hvern sunnudag og rúmlega það því að 11. október kemur Eggert Kaaber í heimsókn með Stopp leikhópinn og sýnir Kamillu og Þjófinn. Þessar sýningar Eggerts og co. hafa orðið árvissar og krakkarnir skemmta sér alltaf jafn vel. Þá verður brúðuleikhús bráðum.
Þar næsta sunnudag, eða 27. september er svo messa kl. 11:00 og fer skráning fermingarbarna fram fyrir messuna. Presturinn talar um fyrirkomulag fermingarstarfa í lok prédikunar og svarar fyrirspurnum í messulok þar sem boðið verður upp á kakó og kleinur eins og alltaf og ævinlega í Þorlákskirkju.
Þá er minnt á foreldramorgna sem eru sem fyrr í bókasafninu, í samstarfi kirkjunnar og safnsins og eru á þriðjudagsmorgnum kl. 10:00. Allir velkomnir þangað ekki síst foreldrar með ung börn.
Þá hittist bænahópurinn,sem hefur fest sig í sessi, undir stjórn Dóru Þorgilsdóttur í kirkjunni kl. 18:00 á mánudögum. Upplagt fyrir þá sem vilja eiga með öðrum kyrrláta og góða bænastund að mæta en öllum er tekið opnum örmum.
Nánar um starfið í safnaðarblaði sem dreift er á hvert heimili í sókninni og á heimasíðu kirkjunnar www.kirkjan.is/thorlakskirkja
Baldur Kristjánsson, 14/9 2009 kl. 10.01