Körfuboltamessa!
Messan, gospelmessan, tónlistarmessan var meiriháttar. Ég vissi ekki að svona mikil sveifla byggi í kórnum og Hannes Baldursson er náttúrulega alveg einstakur stjórnandi. Þá eigum við meiriháttar unga söngkonu Karenu Dröfn Hafþórsdóttur og gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Það var vel mætt í messuna, Fermingarbörn og foreldrar þeirra en þess utan sægur af fólki. Með kórnum voru í messuni 130- 140 manneskjur og auk þess var góður andi í kirkjunni þennan dag eins og svo oft áður.
Ég frétti að milli 30 og 40 manns hefðu berið hjá Eyjólfi Kristjánssyni á mánudagskvöldið og Eyjólfur í feykna stuði. Veri hann velkominn aftur hvenær sem er. Þá eru þær stöllur Hafdís og Sirrí að búa til verulega skemmtilegan sunnudagaskóla sem er einn sá öflugasti á landinu. Ástæða til að mæta þar sérstaklega ef maður er A – maður og vaknar á morgnana sæmilega stemmdur.
16. október verður vonandi körfuboltamessa. Ég er búinn að tala við hann Benedikt Guðmundsson þjálfara og hann ætlar að flytja smá hugvekju um körfubolta og samfélag. Það hefur brunnið við að það vanti sameiningarþræsarann í samfélagið Ölfus/Þorlákshöfn en nú eigum við úrvalsdeildarlið í körfu og erum stolt af. Það er spennandi verkefni að sameinast um þetta lið og þess vegna er þessi körfuboltamessa. Heimir og Grétar og fleiri hljómsveitarmenn munu í kirkjunni m.a. flytja nýtt Þórslag, kirkjukórinn gerir eitthvað skemmtilegt (á alveg eftir að tala við Hannes)og presturinn sem lék nokkra leiki með skólaliði ML 1969 og æfði með HSK í KR heimilinu eitt haust ætlar að flytja körfuboltaræðu þar sem m.a.a verður sagt frá því hvað hefði gerst hefðu þeir verið búnir að finna upp körfuboltann í Palestínu fyrir 2000 árum. Það eina sem getur komið í veg fyrir þessa messu er að liðið standi sig illa í fyrsta heimaleiknum 13. Október og að þjálfarinn setji leikmenn í kirkjubann fram að næsta leik sem verður sunnudagskvöldið 16. Október. En við vonum að til þess komi ekki.
Baldur Kristjánsson, 4/10 2011 kl. 10.56