Þorlákskirkja

 

Biblíudagurinn!

Í bæ heilags Þorláks!

Biblíusýning, messa og sunnudagskóli

Sýning á Biblíusafni Höllu Kjartansdóttur verður í Þorlákskirkju

> sunnudaginn 12. Febrúar og stendur frá 13- 17 (eitt til fimm) en fólk

> getur einnig skoðað sýninguna í upphafi og endi sunnudagaskólans sem byrjar kl. 11:00.

> Kl. 14 verður messa helguð Biblíunni sem hefur verið gefin út

> í viðlíka magni og stjörnur vetrarbrautarinnar eru á nær öllum

> tungumálum veraldar sérstaklega undanfarin 500 ár  eftir að menn fóru

> að þýða bókina á hinar aðskiljanlegustu tungur og föttuðu hvernig ætti

að prenta og þar með fjöldaframleiða bækur.

Halla, sem hefur verið kirkjuvörður og meðhjálpari í Þorlákskirkju og

er frá Suður- Hvammi í Mýrdal og syngur í kór Þorlákskirkju og er gift Erlendi

Jónssyni hafnarverði, hefur safnað Biblíum um árabil.  Safn hennar er

yfirgripsmikið og gefur dálitla innsýn í marbrotna biblíuflóru veraldarinnar.

Ástæða er til að hvetja sunnlendinga til að renna í höfnina og skoða hið merka safn.

Í messuni predíkar séra Baldur stuttlega en Halla fjallar um hinar ýmsu útgáfur Biblíunnar, Hannes spilar á orgelið og kórinn syngur sálma við hæfi.

Aðgangur er ókeypis og langt aðkomnum er boðið upp á kaffi/kakó og konfekt.

Heimamenn fá líka.

>

Bestu kveðjur /Best regards

*******************

Baldur Kristjánsson Th.M. Cand Theol  B.A.Soc Sóknarprestur/parish priest og/and Member of ECRI

Sími/Telephone:  (354) 4833771 / 8980971

www.baldur.is<http://www.baldur.is>   bk@baldur.is<mailto:bk@baldur.is>

Baldur Kristjánsson, 10/2 2012 kl. 14.53

     

    Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi RSS