Þorlákskirkja

 

Helgihald

Messað er í kirkjunni annan hvern sunnudag að jafnaði yfir veturinn og á stórhátíðum. Sunnudagaskóli er annan hvern sunnudag kl. 11.00 yfir veturinn og endar á stuttu ferðalagi í kringum sumardaginn fyrsta. Fermingarfræðsla fer fram í kirkjunni og fermingar eru í kringum páska, oftast er fermt á Skírdag og á Pálmasunnudegi og á sunnudegi fyrir Pálmasunnudag.

Útfarir

Kirkjugarðsvörður sér um að mæla fyrir gröf og að hafa samband við Slysavarnarfélagið sem tekur gröfina og gengur frá henni að athöfn lokinni. Þetta er fólki að kostnaðarlausu. Búið er að taka frá reit í kirkjugarðinum fyrir duftker. Minningarkort Þorlákskirkju eru til sölu í kirkjunni og afgreiðir þau kirkjuvörður eða einhver annar af starfsfólki kirkjunnar. Minningarkort eru einnig til sölu í Blómastúdíói Brynju.

Kirkjukór Þorlákskirkju syngur við allar messur og tekur að sér að syngja við aðrar kirkjulegar athafnir s.s. jarðafarir, brúðkaup og skírnir. Þegar kór er pantaður er best að hafa samband við organista eða kirkjuvörð. Kirkjan er opin allar helgar frá kl. 14.00 –18.00 yfir sumarið. Félag eldri borgara og starfsfólk kirkjunnar skiptist á um að vera í kirkjunni á þessum tíma. Ef fólk óskar eftir að sýna kirkjuna hópum eða gestum á öðrum tímum er best að hafa samband við kirkjuvörð eða prest og verður reynt að bregðast við því ef kostur er.

     

    Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi RSS