Hjallakirkja
Að Hjalla í Ölfusi er Ólafskirkja, kennd við Ólaf helga Noregskonung. Núverandi kirkja er byggð 1928.
Arkitekt var Þorleifur Eyjólfsson frá Grímslæk. Yfirsmiður Kristinn Vigfússon, Eyrarbakka, síðar á Selfossi.
Sterk rök eru til þess að kirkja hafi verið á Hjalla frá fyrstu dögum kristni hér á landi. Er hennar fyrst getið í Flóamannasögu sem þeirrar kirkju sem Skafti (Þóroddsson) lét gera fyrir utan lækinn.
Messað er í Hjallakirkju 3-5 sinnum á ári. Á jóladag, páskadag, á hvítasunnu og síðsumars og/eða á hausti. Hún var áður sóknarkirkjan í Hjallasókn en deilir þeim heiðri nú með Þorlákskirkju.