Þorlákskirkja opin um helgar!
Baldur Kristjánsson, 17/8 2009
Hópur Gnúpverja og Skeiðamanna heimsótti Þorlákskirkju fimmtudaginn 6. ágúst í fylgd Baldurs Loftssonar í grænni rútu sem Þórður Njálsson ók. Þetta var hin skemmtilegasta heimsókn. Sóknarprestur sagði frá kirkjunni og staðnum og lenti satt að segja í vandræðum því að enginn burtfararsvipur var í andlitum fólksins þó erindið væri orðið nokkuð langt. Skemmtileg þessi fróðleiksfýsn sem lifir enn góðu lífi í sveitum landsins. Þegar betur er að gáð sýnist mér vera einnig Hrunamenn meðal gesta. Neðri myndina tók BK en Þórður Njálsson björgunarsveitarmaður á Stokkseyri og rútubílstjóri hina. Myndinar voru teknar í íþróttahúsinu þar sem undirritaður gleymdi sér í kirkjunni en elti fólkið út í íþróttamiðstöð þar sem það dáðist að herlegheitunum. Smellið á myndirnar ef þið viljið fá þær stærri. BK
Baldur Kristjánsson, 7/8 2009
Þorlákskirkja er opin um helgar frá 14-18. Þegar ég kom þarna í veðurblíðunni í gær var Hólmfríður Alda Jónsdóttir að gæta kirkjunnar og sonur hennar Alfeð Sigurjónsson hafði komið við. Við sjáum þau mæðgin hér á myndinni í dyrum helgi
dómsins. Mynd. BK
Baldur Kristjánsson, 28/6 2009
Baldur Kristjánsson, 7/6 2009
Baldur Kristjánsson, 7/6 2009
Í dag (á morgun) þökkum við sjómönnum fyrr og síðar, ungum sem gömlum, lífs og liðnum fyrir starf þeirra og líf. Þökkum þeim fyrir það að hafa við erfið og hættuleg skilyrði fært okkur björg í bú. Sérstaklega er hugur okkar með þeim sem hafa farist við störf sín og með þeim sem lokið hafa lífi sínum hér á jörðu
. Blessuð veri minning þeirra allra. Þetta voru hetjur hafsins, í hópi hinna raunverulegu hetja þjóðarinnar. Nú er æ sjaldnar talað um hetjur hafsins – æ sjaldnar verður sjómannsstarfið tilefni rómantískra eða raunsannra hugleiðinga skálda. Umræðan hefur færst frá sjósókninni sem slíkri yfir í fyrirkomulag, eignarhald. Veröldin hefur líka breyst. Tæki orðið öruggari, vistin um borð manneskjulegri, sjósóknin skipulegri, allt er kortlagt. Þó er sumt sem aldrei breytist, brælan, volkið, erfiðið, bleitan, saltið, fjarveran. Sjómannsstarfið verður aldrei eins og hvert annað starf, það mun ávallt krefjast fórna og útgerðin verður aldrei eins og hver önnur atvinnugrein. Til þess er hún háð of mörgum náttúrulegum þáttum sem við höfum litla eða enga stjórn á. Útgerð verður alltaf blandin áhættu, háð sveiflum – þar verða menn alltaf mis farsælir sagan kennir okkur að sumir eru einfaldlega farsælari en aðrir.
Og gleymum því ekki að sjósóknin ræður líklega baggamuninn um það að hér á landi er hægt að lifa sómasamlegu lífi. Það er hægt að lifa á gæðum landsins landbúnaði, orkunýtingu og með því að sýna ferðamönnum landið og selja þeim handverk og menningu en sjómennskan verður ávallt það sem ríður baggamuninn. Þess vegna megum við til að halda á málum með þeim hætti að afrakstur af greininni verði sem mestur án þess að gengnið sé á höfuðstólinn – greinin verður með öðrum orðum að vera sjálfbær - . Og við verðum að gæta þess að auðlindin sjálf hverfi aldrei úr eigu þjóðarinnar og ákvarðanir um aðgang verði ávallt með íslenskum lögum gerðar með hagsmuni þjóðar í bráð og lengd í huga. Hvernig þessum markmiðum verður best náð er svo útfærsluatriði stjórnvalda og hvort sem það verður í meiri eða minni samstarfi við aðrar þjóðir. Það sem snýr að kristnum dómi er fyrst og fremst þetta: Í fyrsta lagi. Að auðlindin verði einnig auðlind fyrir komandi kynslóðir. Í öðru lagi að réttsýni, sanngirni og jafnræði ráði ferðinni þegar ákvarðanir eru teknar um fyrirkomulag nýtingar.
Á Sjómannadegi óska ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra alls góðs og bið þeim Guðs blessunar.
Baldur Kristjánsson, 6/6 2009
Sjómannadagsmessa verður á sunnudaginn kl. 10:30. Halla Kjartansdóttir og Ellen Huldís Ólafsdóttir lesa lestra dagsins en þær eru og voru báðar konur sjómanna. Guðfinnur Karlsson og Ólafur Jónsson bera síðan blómsveig úr kirkju að fótstalli minnismerkis. Þar mun kór Þorlákskirkju undir stjórn Hannesar Baldurssonar syngja Þjóðsönginn. Um Sjómannadagshelgina verða hafnardagar í Þorlákshöfn, hátið frá föstudegi og fram á sunnudag. Dagskráin er glæsileg að vanda.
Margt verður til skemmtunar á Hafnardögum og má m.a. nefna tónleika með Bubba, sundlaugarpartý, skemmtisiglingu, handverks- og flóamarkað, myndlistasýningu, koddaslag, brennu og sléttusöng, froðupartý, golfmót og fleira og fleira. Dagskrá verður birt þegar nær dregur.

Frá hátíðinni í fyrra. Pétur Friðriksson og Karl Karlsson leggja blómsveig að minnisvarða um drukknaða!
Baldur Kristjánsson, 3/6 2009

Aðalfundur Þorláks- og Hjallasólknar árið 2009 verður í Þorlákskirkju fimmtudaginn 28. maí kl. 20:00. Allir íbúar Þorláks- og Hjallasóknar sem eru í Þjóðkirkjunni hafa seturétt á fundinum með tillögu og artkvæðisrétti og kjörgengi.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðaðir reikningar sóknar og kirkjugarðs lagðir fram
3. Greint frá starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundi.
4. Kosning hluta sóknarnefndarmanna og varamanna til 4ra ára.
5. Kosning tveggja skoðunarmanna eða endurskoðanda sóknar og kirkjugarðs og varamanna þeirra til árs.
6. Kosning í aðrar nefndir og ráð.
7. Önnur mál.
Sóknarnefnd.
Baldur Kristjánsson, 25/5 2009
Kirkjan er opin um helgar yfir sumartímann
Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur
Um forsíðumyndina
Hluti fermingarbarna 2009. Myndarlegur og fallegur hópur.
Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi ![]()