Bagga og Þorbjörg!
Baldur Kristjánsson, 21/5 2009
Ákaflega var ferð okkar upp í Gnúpverjahrepp vel heppnuð. Við komum til messunnar í Stóra-Núpskirkju tímanlega. Sér Axel beið okkar, sagði frá kirkjunni, söng messu og prédikaði fallega. Þorbjörg Jóhannsdóttir lék af list á orgelið og við sungum sálmanna. Einn Gnúpverji var að auki í kirkjunni, einn sá elsti þeirra, Guðbjörg á Minna Núpi eða Bagga en systurnar Möggu og Böggu þekkja margir en Magga eða Margrét lést á síðasta ári. Undirritaður afhenti síðan Axel og Þorbjörgu glermyndir af Þorlákskirkju sem Dagný Magnúsdóttir hannaði og útbjó. Útifyrir kirkjunni var gott að vera, fallegt,bjart og hlýtt.
Baldur Kristjánsson, 21/5 2009
Uppstigningadagur. Kirkjudagur aldraðra. Messuferð Þorláks- og Hjallasóknar. Lagt verður af stað frá Egilsbraut 9 kl. 12:45. Vignir Arnarson við stýrið á rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni. Öryggibelti. Séra Axel Árnason Njarðvík messar yfir okkur í Stóra Núpskirkju kl. 14:00. Þorbjörg Jóhannsdóttir á orgelinu. Kirkjukaffi í Árnesi eftir messu. Kaffi og vöfflur með rjóma. Fararstjóri: Baldur Kristjánsson. Allir velkomnir. Þorlákskirkja, Félag eldri borgara
Baldur Kristjánsson, 18/5 2009
Í dag kl. 13:00 verður fermingarguðsþjónusta í Hjallakirkju. Fermdur verður Árni Freyr Gunnarsson Bjarnastöðum i Ölfusi. Til hamingju með daginn strákur.
Baldur Kristjánsson, 17/5 2009
Kirkjan er opin um helgar yfir sumartímann
Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur
Um forsíðumyndina
Margir koma að starfi í Þorlákskirkju. Þarna má sjá Höllu Kjartansdóttur meðhjálpara og kirkjuvörð, Barböru Guðnadóttur menningarfulltrúa Ölfuss, Ástu Margréti Grétarsdóttur sem er í sóknarnefnd, Baldur Kristjánsson sóknarprest, hjónin Álfhildi Steinbjörnsdóttur og Sverrir Sigurjónsson sem lengst af hefur séð um kirkjugarðinn og Benedikt Thorarenssen sóknarnefndarmann. Mynd Bjarni Harðarson.
Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi ![]()