Þorlákskirkja

 

Hátíðlegt brúðkaup í Hjallakirkju

Guðni Þór Þorvarldsson og Hólmfríður Björg Þorvaldsdsdóttir voru gefin saman við hátíðlega athöfn í Hjallakirkju (í Ölfusi) síðdegis í gær laugardaginn 9. maí. Séra Baldur Kristjánsson gaf brúðhjónin saman. Páll Óskar söng og Monica spilaði á sembal. Máney Alda var hringaberi. Athöfnin var bæði hátíðleg og skemmtileg. Hljómurinn í Hjallakirkju er sérstaklega skemmtilegur. Á eftir var veisla í Hótel Hlíð. Mynd BK

Guðni Þór Þorvarldsson og Hólmfríður Björg Þorvaldsdsdóttir voru gefin saman við hátíðlega athöfn í Hjallakirkju (í Ölfusi) síðdegis í gær laugardaginn 9. maí. Séra Baldur Kristjánsson gaf brúðhjónin saman. Páll Óskar söng og Monica spilaði á sembal. Máney Alda var hringaberi. Athöfnin var bæði hátíðleg og skemmtileg. Hljómurinn í Hjallakirkju er sérstaklega skemmtilegur. Á eftir var veisla í Hótel Hlíð. Mynd BK

Baldur Kristjánsson, 10/5 2009

Fermingarbörn 2009

Hluti fermingarbarna í Þorlákskirkju vorið 2009. Mynd. BK

Hluti fermingarbarna í Þorlákskirkju vorið 2009. Mynd. BK

Baldur Kristjánsson, 4/5 2009

Fermingarbörn 2007 (hluti þeirra)

Hér má sjá fermingarbörn ársins 2007, líklega. Kannast einhver við þau?

Hér má sjá fermingarbörn ársins 2007, líklega. Kannast einhver við þau?

Baldur Kristjánsson, 29/4 2009

Hópmynd í Hraungerðiskirkju!

Sunnudagaskólaferð Þorlákskirkju heppnaðist með ágætum.  Þórður Njálsson í bíl frá Guðmundi Tyrfingssyni ók okkur í Hraungerðiskirkju þar sem séra Kristinn Ágúst tók á móti og var skemmtilegur og fræðandi um stund.  Síðan var sungið og á heimleiðinni komið við hjá Þórhildi í Hafinu Bláa í kjúkling og franskar.  Hér er mynd sem Hannes organisti tók af hópnum í hinni fallegu Hraungerðiskirkju í Flóa.

Baldur Kristjánsson, 29/4 2009

Kirkjukór Þorlákskirkju (myndin tekin 2006)

Baldur Kristjánsson, 28/4 2009

Barn skírt og sunnudagaskólaferðalag

Séra Kristinn tlara við börnin!

Séra Kristinn tlara við börnin!

Borðað í Hafinu bláa
Borðað í Hafinu bláa
Barnið sem skírt var í kirkjunni í dag ásamt foreldrum og presti

Barnið sem skírt var í kirkjunni í dag ásamt foreldrum og presti

Sunnudagskólaferðalagið heppnaðist með ágætum.  Farið var í Hraungerðiskirkju og síðan snætt í Hafinu Bláa hjá Þórhildi Óalfsdóttur. 36 voru í ferðalaginu og Kristinn Ágúst tók á móti okkur og brá á leik eins og lesa má út úr myndinni af honum. Næsta mynd er af krökkunum að snæða hjá Þórhildi og þriðja myndin er af barninu Guðmundi Einari sem prestur skírði í Þorlákskirkju í dag og foreldrum hans Önnu S. Einarsdóttur og Guðleifi Werner Guðmundssyni.

Baldur Kristjánsson, 23/4 2009

Sunnudagaskólaferðalag

Sunnudagaskólaferðalag sumardaginn fyrsta (23ja apríl ) kl. 10:30 til 13:30. Innritun hjá Sirry í síma 862 6710 og Hafdísi í síma 4833484.  Öll börn velkomin í fylgd með fullorðnum. Farið verður í Hraungerðiskirkju og stoppað á leiðinni heim í Hafinu bláa.

Baldur Kristjánsson, 22/4 2009

Graduale Nobili í Þorlákskirkju

Graduale Nobili kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar heldur tónleika í Þorlákskirkju sunnudaginn 5. apríl kl. 15:30.

Upplýsingar um Graduale Nobili:

Graduale Nobili var stofnaður haustið 2000. Kórinn er skipaður 24 ungum stúlkum, völdum úr hópi þeirra sem sungið hafa með Gradualekór Langholtskirkju. Allir kórfélagar hafa stundað eða lokið tónlistarnámi.

Kórinn vakti gífurlega athygli strax og voru umsagnir gagnrýnenda eftir fyrstu sjálfstæðu tónleikana svo lofsamlegar að fátítt má telja.

Kórinn hreppti annað sæti í „Evrópsku æskukórakeppninni“ í Kalundborg í Danmörku árið 2001. Kórinn gaf út geisladisk árið 2001 sem tilnefndur var til Íslensku tónlistarverðlaunanna og menningarverðlauna DV og fékk mjög lofsamlega dóma. Árið 2008 gaf kórinn út geisladiskinn „In Paradisum“ en á honum eru eingöngu íslensk verk, sum þeirra samin fyir kórinn.

Hann hefur tekið þátt í alþjóðlegu kórakeppninni í Tampere í Finnlandi og hreppti þar tvenn gullverðlaun eða annað sæti.

Hann var fulltrúi Íslands á norræna kirkjutónlistarmótinu í Danmörku árið 2004.

Kórinn söng á tónleikum Ríkisútvarpsins fyrir EBU í desember 2007.

Stjórnandi kórsins hefur frá upphafi verið Jón Stefánsson.

 

Við munum syngja keppnisverkin okkar fyrir alþjóðlegu kórakeppnina í Llangollen í Wales í júlí.

 

Maríuljóð eftir Hildigunni Rúnarsdóttur/Vilborgu Dagbjartsdóttur

Ave Maria eftir Gustav Holst fyrir tvo fjórradda kvennakóra

Lorca svíta eftir Rautavaara

 

Ég vil lofa eina þá eftir Báru Grímsdóttur

Lofsöngur (þjóðsöngurinn) eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson

Barnagæla eftir hjálmar Ragnarsson

 

Þær keppa í tveim flokkum, kvennakóra og kammerkóra.

 

Auk þess verða fleiri verk á efnisskránni.

Baldur Kristjánsson, 2/4 2009

Fermingar í Þorláksprestakalli

Fermingar í Þorlákshafnarprestakalli á vordögum árið 2009.

Prestur Baldur Kristjánsson

Organisti Hannes Baldursson

Kór:  Kirkjukór Þorlákskirkju

 

29. mars 2009 kl. 13:30 Þorlákskirkja

 

Kristrún Gestsdóttir  Knarrarbergi 9

Haukur Andri Grímsson Egilsbraut 4

Sighvatur Bjarki Bjarkason Finnsbúð 3

Guðrún Hjördís Hafsteinsdóttir Eyjahrauni 9

Sædís Sif Ólafsdóttir Lyngberg 10

Anna María Gunnþórsdóttir Eyjahrauni 33

 

Pálmasunnudagur kl. 13:30 Þorlákskirkja

 

Rafn Kristófer Rafnarsson Oddabraut 14 

Einar Örn Guðbjartsson  Lyngbergi 15

Silja Dagrún Júlíusdóttir Egilsbraut 30

Svavar Berg Jóhannsson  Finnsbúð 10

Rakel Ósk Aðalsteinsdóttir Egilsbraut 24,

Anna Ponkratova  Hafnarbergi 8  

 

Skírdagur 9. apríl kl. 13:30 Þorlákskirkja

 

Jana Ármannsdóttir  Lýsubergi 4 

Eva Lind Elíasdóttir  Finnsbúð 11

Bergsveinn Hugi Óttarsson   Básahrauni 25

Ragnar Már Þorvaldsson Haukabergi 5

Alexander T. Hallgrímsson  Egilsbraut 16 

Kristín Jessíca Hallgrímsdóttir  Egilsbraut 16

Númi Snær Jóhannesson Lyngbergi 21

Ásgeir Helgi Þórðarson Hjallabraut 9

Snædís Lilja Daníelsdóttir Hafnarbergi 14

Smári Ragnar Hjálmarsson Norðurbyggð 18b

 

19. apríl sunnudagur kl. 11:00 Þorlákskirkja

Erlendur Ágúst Stefánsson  Heinabergi 23

 

3. maí Strandarkirkja kl. 14:00

Þórarinn Friðriksson Heiðmörk 2C

 

 

17. maí Hjallakirkja kl. 14:00

Árni Freyr Gunnarsson Bjarnastaðir

 

 

Hvítasunna 31. maí kl. 13:30  Þorlákskirkja

 

Ólöf Björk Sigurðardóttir  Lyngbergi 12

Una Guðrún Gautadóttir  Básahrauni 35

Arna Guðnadóttir Básahrauni 21 

Hjörtur Már Ingvarsson Norðurbyggð 8. 

Hákon Svavarsson  Hjallabraut 7 

Baldur Kristjánsson, 13/3 2009

Ósýnilegi vinurinn

Þorlákskirkja kl. 11:00. Sunnudagaskólinn. Stop leikhópurinn, Eggert Kaaber og co.sýnir: Ósýnilega vininn eftir sögu Kari Vinje.

Nú verða allir krakkar að koma og fullorðnir.

Munið foreldramorgna í bókasafni þriðjudaga milli 10 og 12 . Kaffidrykkju fyrir atvinnulausa Þriðjudaga og fimmtudaga milli 10 og 12 og bænahóp sem kemur saman kl. 18:00 á miðvikudögum.  kirkjan.is/thorlakskirkja/

Baldur Kristjánsson, 5/3 2009

Kirkjan er opin um helgar yfir sumartímann

Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur

Um forsíðumyndina

Margir koma að starfi í Þorlákskirkju. Þarna má sjá Höllu Kjartansdóttur meðhjálpara og kirkjuvörð, Barböru Guðnadóttur menningarfulltrúa Ölfuss, Ástu Margréti Grétarsdóttur sem er í sóknarnefnd, Baldur Kristjánsson sóknarprest, hjónin Álfhildi Steinbjörnsdóttur og Sverrir Sigurjónsson sem lengst af hefur séð um kirkjugarðinn og Benedikt Thorarenssen sóknarnefndarmann. Mynd Bjarni Harðarson.

 

Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi RSS