Þorlákskirkja

 

Álfhildur Steinbjörnsdóttir fylgist með

Álfhildur Steinbjörnsdóttir fylgist með

Baldur Kristjánsson, 25/2 2009

Baldur Kristjánsson, 25/2 2009

Margir mættu

Margir mættu

Baldur Kristjánsson, 25/2 2009

Edda Laufey og Svanur flytja fyrirlesturinn!

Edda Laufey og Svanur flytja fyrirlesturinn!

Baldur Kristjánsson, 25/2 2009

Skemmtilegur og fróðllegur fyrirlestur!

Edda Laufey Pálsdóttir og Svanur Kristjánsson flutti fróðlegan fyrirlestur um ferð sína til Egyptalands, Edda Laufey ásamr Önnu Lúthersdóttur

Edda Laufey Pálsdóttir og Svanur Kristjánsson flutti fróðlegan fyrirlestur um ferð sína til Egyptalands, Edda Laufey ásamr Önnu Lúthersdóttur

Baldur Kristjánsson, 25/2 2009

Edda Laufey í Þorlákskirkju!

               

 

Samvera á vegum Þorlákskirkju og eldri borgara verður miðvikudag 25. febrúar (öskudag) kl. 16:00 að Egilsbraut 9.

 

Edda Laufey Pálsdóttir segir frá Egyptalandsför sinni í máli og myndum. Kaffi á könnunni.

 

Allir velkomnir ungir sem aldnir. Skemmtilegt fyrir þá sem aldrei hafa siglt á Níl og einnig fyrir hina sem það hafa gert.

 

 

Þorláksirkja og eldri borgarar

Baldur Kristjánsson, 24/2 2009

Bænahópur- foreldramorgnar!

Bænahópur undir stjórn Dóru Þorgilsdóttur guðfræðings hittist á miðvikudögum kl. 18:00 í kirkjunni. Næst í dag, miðvikudag 11. febrúar.  Notalegt andrúmsloft.  Spjallað um trúmál.  Kaffi á könnunni. Allir velkomnir. Síminn  hjá Dóru er 8975525.

 

Foreldrar – verðandi mæður – munið foreldramorgna á bókasafninu á þriðjudagsmorgnum milli kl. 10 og 12.  Það er spjallað saman – stundum er fræðsla – og alltaf kaffi og stundum með því.

 

 

Næsti sunnudagaskóli er 22. febrúar kl. 11:00 og messa sama sunnudag kl. 14:00

 

Sóknarprestur

Baldur Kristjánsson, 10/2 2009

Atvinnuleysi í Ölfusi!

Einhvers staðar sá ég að 80 manns væru á atvinnuleysisskrá í Ölfusi, já það var á INN sjónvarpsstöð þar sem þau voru að spjalla um Bitruvirkjun við Óla á Hrauni bæjarstjórarnir í Ölfusi og í Hveragerði.  Ólafur Áki nefndi það að um 80 manns væru atvinnulausir í Ölfusi. Nú er það svo að atvinnuleysi er alvarlegt mál og vonandi tekst okkur að finna vinnu fyrir alla.

Árið 2002 var atvinnuleysi í Ölfusi. Þá komum við upp í Þorlákskirkju athvarfi fyrir atvinnulausa.  Fólk kom á morgnana, fimm, sex manneskjur stundum, las Moggann og Fréttablaðið, drakk kaffi, át vínarbrauð úr bakaríi Más bakara og Önnu sem nú eru búin að selja Grími bakara, frænda Benna heitins Thor., og spjallaði við hvert annað og prestinn.  Einhvern tímann kom maður og miðlaði fróðleik um ástand og horfur. Svo hætti fólk að koma – ástandið lagaðist- presturinn var aftur einn með vínarbrauðin sín.

Er áhugi fyrir því að þetta verði endurtekið? Eigum við að opna athvarf lesa Moggann og éta saman víanarbrauð? Er atvinnuleysi farið að hrjá fólk hér í Ölfusi eða er þetta lítið meira en hefðbundið atvinnuleysi ennþá? Ég vil endilega að fólk hafi um þetta samband. Maður á víst ekki að loka sig af sé manni hent heim. Ég þekki þetta reyndar sjálfur, einu sinni var mér hent heim og fór ferlega illa með sjálfsálitið.  Hafið endilega samband við prestinn eða prestinn í Hveragerði ef menn búa í Ölfusinu fyrir ofan Þurá. Þeir sem vita um einstaklinga sem eru að koðna niður af þessum sökum láti vita – í ágætu hófi á maður að skipta sér af náunganum.  Sími minn er 8980971 og netfangið bk@baldur.is

Baldur Kristjánsson, 4/2 2009

Sunnudagur 25. janúar 2008

Þorlákskirkja :  Sunnudagaskóli kl. 11:00.  Nýtt og spenanndi efni.  Sigríður og Hafdís og Hannes sjá um stundina.

Messa kl. 14:00.  Kirkjukór Þorlákskirkju. Organisti Hannes Baldursson.  Prestur Baldur Kristjánsson.  Fermingarbörn og foreldrar þeirra hvött til þáttöku

Minnt er á foreldramorgna í bókasafni og bænahóp sem hittist kl. 18:00 á miðvikudögum undir stjórn Dóru Þorgilsdóttur guðfræðings

Baldur Kristjánsson, 24/1 2009

Guðrún Hrönn Stefánsdóttir og Árni Sigurðsson voru gefin saman í Þorlákskirkju af séra Baldri Kristjánssyni síðasta dag ársins 2008

Guðrún Hrönn Stefánsdóttir og Árni Sigurðsson voru gefin saman í Þorlákskirkju af séra Baldri Kristjánssyni síðasta dag ársins 2008

Baldur Kristjánsson, 6/1 2009

Kirkjan er opin um helgar yfir sumartímann

Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur

Um forsíðumyndina

Margir koma að starfi í Þorlákskirkju. Þarna má sjá Höllu Kjartansdóttur meðhjálpara og kirkjuvörð, Barböru Guðnadóttur menningarfulltrúa Ölfuss, Ástu Margréti Grétarsdóttur sem er í sóknarnefnd, Baldur Kristjánsson sóknarprest, hjónin Álfhildi Steinbjörnsdóttur og Sverrir Sigurjónsson sem lengst af hefur séð um kirkjugarðinn og Benedikt Thorarenssen sóknarnefndarmann. Mynd Bjarni Harðarson.

 

Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi RSS