Biskupinn í Þorlákskirkju!
Sunnudaginn 28. desember verður menningarstund í Þorlákskirkju klukkan 16.
Baldur Kristjánsson, 22/12 2008
Sunnudaginn 28. desember verður menningarstund í Þorlákskirkju klukkan 16.
Baldur Kristjánsson, 22/12 2008
Þorlákskirkja: Aðfangadagur. Aftansöngur kl. 18:00Hjallakirkja :
Hjallakirkja: Jóladagur. Hátíðarmessa kl. 14:00
Strandarkirkja: 2. jóladagur.Hátíðarmessa kl. 14:00Hátiðarsöngur Bjarna Þorsteinssonar.
Kirkjukór Þorlákskirkju. Organisti Hannes Baldursson. Prestur Baldur Kristjánsson
Baldur Kristjánsson, 12/12 2008
1. sunnudagur í aðventu.Sunnudagaskóli kl. 11:00. Sigríður, Hafdís og Hannes stýra gleðinni.
Aðventustund kl. 16:00. Eldri kór Grunnskólans,Skólalúðrasveit Þorlákshafnar, Tónar og trix, sönghópur eldriborgara og loks Kór Þorlákskirkju. Stjórnendur eru: Ása Berglind Kjartansdóttir, Ester Hjartardóttir, Gestur Áskelsson og Hannes Baldursson
Fermingarbörn ganga inn með kerti. Kakó og smákökur eftir stundina. Kl. 18:00 verður ljós tendrað á jólatré bæjarins á Ráðhústorgi.
Munið foreldramorgna.
Áhugasamir um bænahóp gefi sig fram við sóknarprest
Fermingarfræðsla föstudögum kl. 13:00
http://kirkjan.is/thorlakskirkja/
Baldur Kristjánsson, 25/11 2008
Í dag 2. nóv. er sunnudagaskóli kl. 11:00. Í kvöld kl. 20:00 er söngmessa. Það er venjuleg messa en mikið sungið. Sjáumst!
Baldur Kristjánsson, 2/11 2008
Hvers vegna Þorlákshöfn?
Hver var Þorlákur?
Hver voru tengsl Þorlákshafnar og Skálholts?
Sigurður biskup í Skálholti fræðir okkur um það í kvöld
Þriðjudagskvöld kl. 20 - 20:30.
Kaffi og Hraun á eftir og spurningar
Staður: Félagsaðstaða eldri borgara Egilsbraut 9
Allir velkomnir
Messuígildi fyrir fermingarbörn
Samstarfsverkefni Þorlákskirkju og Félagsaðstöðu eldri borgara.
p.s. Næsta sunnudag er sunnudagaskóli kl. 11:00 og kvöldmessa kl. 20:00. Munið foreldramorgna alla þriðjudaga í bókasafni.
Baldur Kristjánsson, 27/10 2008
Sunnudagaskóli er núna 19. Október kl. 11:00. Sjáumst.
Baldur Kristjánsson, 16/10 2008
Jakob Ágúst Hjálmarsson kom til okkar í gær með fyrirlestur um engla. Þetta var alveg frábær stund. Fyrirlesturinn mjög góður 25 mínútna myndskreyttur power point fyrirlestur, fallegur, fróðlegur – og það var húsfyllir, fólk streymdi að úr öllum áttum, ungir sem aldnir og allir áttu notalega stund sem endaði í samtali hins reynda prests og hins áfjáða almúga um bænina og gildi hennar. Sannarlega eftirminnileg stund og eftirbreytniverð og þess vegna vek ég athygli á þessu. Fyrirlesturinn er liður í fræðslufyrirlestraröð Þorlákskirkju og ég kann Jakobi bestu þakkir fyrir innleggið.
Baldur Kristjánsson, 15/10 2008
Á þessum síðustu og verstu tímum er ástæða til þess að vekja athygli á að símar sóknarprests er 8980971 og 4833771. Þeim sem eru þungir í spori þessa dagana (af hvaða ástæðu sem er) geta haft samband þó ekki sé til annars en að fá smá andlegan stuðning.
Baldur Kristjánsson, 9/10 2008
Þriðjudaginn 14. október kemur Jakob Ágúst Hjálmarsson og spjallar um engla. Englar leika stórt hlutverk í Jesú sögunni og léku mikið hlutverk í hugarheimi fyrri tíðar manna og við hugsum af og til til þeirra einnig. Tölum t.d. um verndarengla. Séra Jakob sem var Dómkirkjuprestur og lengi prestur á Ísafirði.
Eftir erindi Jakobs sem stendur í u.þ.b. hálftíma er boðið upp á kaffi og spjall og þetta fer fram í salnum á Egilsbraut 9 og er ætlað öllum og allir eru velkomnir.
Þriðjudaginn 21. október heldur Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi hjá Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrirlestur í kirkjunni um kvíðann og áhrifamátt bænarinnar en þetta efni er ekki hvað síst þeim hugleikið sem greinst hafa með krabbamein eða aðra alvarlega sjúkdóma. Þarna verður líka boðið uppá kaffi og umræður og það er Halla Kjartansdóttir sem stjórnar kvöldinu.
Þriðjudaginn 28. október er svo komið að því að leita svars við spurningu sem snertir Þorlákshöfn. Hver var Þorlákur biskup sem Þorlákshöfn er kennd við og hver voru tengsl hans við staðinn. Það er Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skálholti sem leiðir okkur í allan sannleika um það og tengsl Skálholts og Þorlákshafnar. Sr. Sigurður er margfróður um þessi málefni. Og eins og fyrr þá verður boðið upp á kaffi og umræður á eftir.
Sunnudagaskólar í haust eru annan hvern sunnudag næst 19. október, síðan 2. nóvember, þá 16. nóvember og 30. nóvember og 14. desember og alltaf kl. 11:00 og standa í 45 til 50 mínútur. Sömu daga er messa kl. 14:00 í Þorlákskirkju nema 19. október þá er Veiðimannamessa og Uppskerumessa í Strandarkirkju þar sem allir eru auðvitað velkomnir jafnvel þó þeir hafi ekki uppskorið neitt eða veitt neitt. Allir hafa reyndar uppskorið eitthvað vnjulega í hlutfalli við það sem þeir hafa sáð.
Ég minni á foreldramorgnana í bókasafninu á þriðjudögum milli 10 og 12 og einnig netfang kirkjunnar http://kirkjan.is/thorlakskirkja/
Og kór Þorlákskirkju óskar eftir söngfólki í allar raddir. Skemmtilegt vetrarstarf framundan. Uppýsingar gefur Linda í síma 867-8274 og Hannes í síma 862-9944
Baldur Kristjánsson, 3/10 2008
Frá Þorlákskirkju
Sunnudagaskólinn byrjar kl. 11:00. Krakkar komið með pabba og mömmu og fáið fjársjóðsbókina.
Sigríður Stefánsdóttir og Hafdís Þorgilsdóttir sjá um stundina ásamt séra Baldri og Hannesi organista
Messa kl. 14:00. Komum og hlýðum á kór Þorlákskirkju. Fermingabörn og foreldrar þeirra eru beðin um að koma
Foreldramorgnar í bókasafninu milli 10 og 12 á þriðjudögum
Fræðslunámskeið um kristna trú í október. Nánar á vef kirkjunnar
Unglingar sem hafa áhuga á leiðtogastarfi hafi samband við séra Baldur
Kór Þorlákskirkju óskar eftir söngfólki í allar raddir. Skemmtilegt vetrarstarf framundan. Uppýsingar gefur Linda í síma 867-8274 og Hannes í síma 862-9944
Heimasíða Þorlákskirkju www.kirkjan.is/thorlakskirkja
Baldur Kristjánsson, 15/9 2008
Kirkjan er opin um helgar yfir sumartímann
Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur
Um forsíðumyndina
Margir koma að starfi í Þorlákskirkju. Þarna má sjá Höllu Kjartansdóttur meðhjálpara og kirkjuvörð, Barböru Guðnadóttur menningarfulltrúa Ölfuss, Ástu Margréti Grétarsdóttur sem er í sóknarnefnd, Baldur Kristjánsson sóknarprest, hjónin Álfhildi Steinbjörnsdóttur og Sverrir Sigurjónsson sem lengst af hefur séð um kirkjugarðinn og Benedikt Thorarenssen sóknarnefndarmann. Mynd Bjarni Harðarson.
Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi ![]()