Frá Þorlákskirkju
Sunnudagaskólinn byrjar kl. 11:00. Krakkar komið með pabba og mömmu og fáið fjársjóðsbókina.
Sigríður Stefánsdóttir og Hafdís Þorgilsdóttir sjá um stundina ásamt séra Baldri og Hannesi organista
Messa kl. 14:00. Komum og hlýðum á kór Þorlákskirkju. Fermingabörn og foreldrar þeirra eru beðin um að koma
Foreldramorgnar í bókasafninu milli 10 og 12 á þriðjudögum
Fræðslunámskeið um kristna trú í október. Nánar á vef kirkjunnar
Unglingar sem hafa áhuga á leiðtogastarfi hafi samband við séra Baldur
Kór Þorlákskirkju óskar eftir söngfólki í allar raddir. Skemmtilegt vetrarstarf framundan. Uppýsingar gefur Linda í síma 867-8274 og Hannes í síma 862-9944
Heimasíða Þorlákskirkju www.kirkjan.is/thorlakskirkja
Baldur Kristjánsson, 15/9 2008
Margvíslegar gjafir bárust Hjallakirkju á 80 ára afmæli hennar. Afkomendur hjónanna Hermanns Eyjólfssonar og Sólveigar Sigurðardóttir í Gerðakoti gáfu altarisdúk sem gerður er af Rósu Hermannsdóttur. Ása Sigurðardóttir frá Hjalla gaf fallega blómavasa á altari kirkjunnar. Vegleg peningagjöf barst frá Aðalheiði Ísleifsdóttur til minningar um foreldra hennar og einnig frá Þóru Þorleifsdóttur en hún er dóttir arkitekts kirkjunnar Þorleifs Eyjólfssonar frá Grímslæk. Þarna voru systkinahópar frá Hjalla, Gerðakoti , Læk og Grímslæk m.a. börn arkitekstsins Þorleifs Eyjólfssoanr og þau elstu mundu vígsludag kirkjunnar. Ein konan sem var viðstödd mundi vígsludaginn fyrir 80 árum þá var hún sjö ára gömul, það var 5. nóvember árið 1928 og biskupinn var hr. Jón Helgason. Biskup tók þrjá daga í þetta og gisti undir Hjallanum. Já tímarnir eru breyttir.
Baldur Kristjánsson, 1/9 2008
Stundum eru textar Biblíunnar auðskildir eins og upp úr nýtísku sjálfshjálparbók, þessi er þannig en þó margræður. Inn í íslenskan samtíma á hann margskonar erindi.
,,Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.
Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?”
,,Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil!
Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.”
Út af þessum texta úr Matteusarguðspjalli leggja flestir prestar hinnar íslensku þjóðkirkju í dag.
Baldur Kristjánsson, 31/8 2008
það er flaggað í hálfa stöng í Þorlákskirkju í dag. Tilefnið er andlát Sigurbjarnar Einarssonar biskups en hann lést á Landsspítalanum í Reykjavík í morgun 28. ágúst. Sigurbjörn Einarsson var áhrifamesti kennimaður síðustu aldar og í hópi þeirra Íslendinga sem mótuðu hvað mest samtíð sína. Hann var 97 ára gamall er hann lést eftir skammvinn veikindi. Við hér minnumst hans með virðingu.
Baldur Kristjánsson, 28/8 2008
Sunnudag næsta 31. ágúst kl. 14:00 höldum við hátíðlegt að Hjalla í Ölfusi 80 ára afmæli Hjallakirkju. Hjallakirkja er Ólafskirkja, kennd við Ólaf helga Noregskonung. Núverandi kirkja er byggð 1928.
Arkitekt var Þorleifur Eyjólfsson frá Grímslæk. Yfirsmiður Kristinn Vigfússon, Eyrarbakka, síðar á Selfossi.Sterk rök eru til þess að kirkja hafi verið á Hjalla frá fyrstu dögum kristni hér á landi. Er hennar fyrst getið í Flóamannasögu sem þeirrar kirkju sem Skafti (Þóroddsson) lét gera fyrir utan lækinn.Hjallakirkja var áður sóknarkirkjan í Hjallasókn en deilir þeim heiðri nú með Þorlákskirkju.
Í messunni á sunnudaginn mun Sr. Svavar Stefánsson fyrrverandi sóknarprestur kirkjunnar þjóna fyrir altari ásamt sóknarpresti sr. Baldri Kristjánssyni. Organisti er Hannes Baldursson og kirkjukór Þorlákskirkju syngur. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skálholtsstifti prédikar. Eftir messu er kirkjugestum boðið til kaffisamsætis að hótelinu að Hlíð í Ölfusi skammt frá kirkjustaðnum.
Allir velunnarar og vinir Hjallakirkju nær og fjær eru hjartanlega velkomnir og að sjálfsögðu allir aðrir.
Baldur Kristjánsson, 26/8 2008
Gömul sannindi um það að maður sé manns gaman má setja fram á annan hátt, þennann: Hafðu samskipti við marga og þú munt lifa vel og lengi. Hamingjan felst í samskiptum. Rannsóknir sýna að því fleirra fólk sem er í lífi þínu því langlífari verðirðu. Bjóddu góðan daginn, sýndu öðrum áhuga og þú munt verða áhugaverð(ur). Hafðu samband við fjarskylda ættingja og spurðu hvernig gangi. Yrtu á börnin þín. Segðu sæl(l) elskan næst þegar makinn nálgast. Deildu völdum. Talaðu við undirmenn þína eða samstarfsmenn. Vertu ekki eins og gamall og líflaus trjástofn. Vertu eins og blómum skrýtt laufgað tré.
Baldur Kristjánsson, 3/8 2008
Þorlákskirkja er opin á laugardögum og sunnudaögum milli kl. 14 og 18. Á þeim tíma er einhver í kirkjunni sem aðstoðar fólk og fræðir. Á öðrum tímum má hafa samband við Höllu Kjartansdóttur kirkjuvörð í síma 483 3661 eða Baldur Kristjánsson sóknarprest í síma 8980971.
Þorlákskirkja er falleg og stílhrein kirkja svo og umhverfi hennar. Nánari fróðleikur um kirkjuna er á heimasíðu þessari
Baldur Kristjánsson, 8/7 2008
Sl sunnudag var Oliver Daði skírður í Þorlákskirkju. Á myndinni eru með honum auk stóra bróðurs foreldrarnir Katarzyna Radwanska og Þorsteinn Rúnar Sæmundsson
Baldur Kristjánsson, 7/7 2008
Baldur Kristjánsson, 26/6 2008
Aðalsafnaðarfundur Þorláks- og Hjallasóknar verður fimmtudaginn 12. júní kl. 20:00 og hefst með helgistund. Upphaflega átti þessi fundur að vera 29. maí en var sjálffrestað vegna þess að þann sama dag reið yfir Suðurlandsskjálfti upp á 6,1 -6,7 á Richterkvarða. Enginn leið þó líkamlega kvöl í sóknunum en hina andlegu pínu getur enginn mælt.
Á aðalsafnaðarfundinum fara fram venjubundin aðalfundarstörf. Ekki þarf þó á þessum fundi að kjósa neina í sóknarnefnd og engar tillögur um stóráform liggja fyrir. Að sækja fundinn gæti því verið þægileg leið til að kynnast starfi kirkjunnar án þess að eiga það á hættu fá í sína koju tímafrek trúnaðarstörf. Alltaf er boðið upp á kaffi á fundi sem þessum sem gæti staðið svona í einn og hálfan tíma.
Allir Þjóðkirkjumeðlimir í Þorlákshöfn og í Ölfusi þar upp af til og með Þurár eiga seturétt á fundinum með fullu málfrelsi og tillögurétti.
Baldur Kristjánsson, 6/6 2008