Þorlákskirkja

 

Foreldramorgnar á bókasafninu!

Foreldramorgnar í bókasafninu á Þriðjudögum milli kl. 10 og 12.  Sjá nánar á slóðinni http://www.olfus.is/template1.aspx?module=modules/ItemReader.ascx&itemId=374&itemtype=1001

Baldur Kristjánsson, 26/6 2008

Aðalsafnaðarfundur 12. júní

Aðalsafnaðarfundur Þorláks- og Hjallasóknar verður fimmtudaginn 12. júní kl. 20:00 og hefst með helgistund. Upphaflega átti þessi fundur að vera 29. maí en var sjálffrestað vegna þess að þann sama dag reið yfir Suðurlandsskjálfti upp á 6,1 -6,7 á Richterkvarða.  Enginn leið þó líkamlega kvöl í sóknunum en hina andlegu pínu getur enginn mælt.

Á aðalsafnaðarfundinum fara fram venjubundin aðalfundarstörf. Ekki þarf þó á þessum fundi að kjósa neina í sóknarnefnd og engar tillögur um stóráform liggja fyrir.  Að sækja fundinn gæti því verið þægileg leið til að kynnast starfi kirkjunnar án þess að eiga það á hættu fá í sína koju tímafrek trúnaðarstörf.  Alltaf er boðið upp á kaffi á fundi sem þessum sem gæti staðið svona í einn og hálfan tíma. 

Allir Þjóðkirkjumeðlimir í Þorlákshöfn og í Ölfusi þar upp af til og með Þurár eiga seturétt á fundinum með fullu málfrelsi og tillögurétti.

Baldur Kristjánsson, 6/6 2008

Messa á Sjómannadag

Messa verður í Þorlákskirkju á Sjómannadag kl. 11. Blómsveigur lagður að minnisvarða um sjómenn að messu lokinni.

Baldur Kristjánsson, 23/5 2008

Kirkjan er opin um helgar yfir sumartímann

Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur

Um forsíðumyndina

Hluti fermingarbarna 2009. Myndarlegur og fallegur hópur.

 

Háaleiti, 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771 , fax 4833566 · Kerfi RSS