Þjóðkirkjan er frjálst og sjálfstætt trúfélag. Allir landsmenn geta tilheyrt henni. Þéttriðið net sókna um land allt tryggir að þjónusta kirkjunnar nái til landsmanna allra. Þjóðkirkjan er opin öllum, allir eiga aðgang að þjónustu hennar og eru ekki krafðir um trúarafstöðu.
Þjónusta
Guðsþjónustur helgidaganna og helgar athafnir þjóðkirkjunnar, svo sem skírn, ferming, brúðkaup, útför, eru áningarstaðir á lífsins leið, með veganesti orðs og atferlis sem styrkja samfélagið milli fólks og kynslóða og efla von og lífsþrótt. Þar verður hin opna þjóðkirkja sýnileg, með sína löngu hefð og sögu og sterka framtíðarsýn í ljósi Jesú Krists.
Í blíðu og stríðu lífsins þörfnumst við stuðnings og samfylgdar annars fólks, fjölskyldu og vina. Þjóðkirkjan hefur um aldir lagt til rými, iðkun, tákn og orð til að tjá gleði og sorg, einn og með öðrum. Í einrúmi og opinberlega er beðið fyrir fólki og samfélagi. Barnastarf kirkjunnar er stuðningur við trúaruppeldi heimilanna þar sem börnum er kennt að elska Guð og biðja. Leiðsögn í andlegum efnum, fræðsla og uppbygging í trú er mikilvægur þáttur í þjónustu kirkjunnar. Sálgæsla presta og djákna reynist ómetanleg hjálp þegar glímt er við dýpstu og örðugustu lífsspurningar.
Þjóðkirkjan hefur með höndum margskonar félagslega þjónustu, kærleiksþjónustu safnaða og neyðaraðstoð innanlands og þróunar og neyðarhjálp á alþjóðavettvangi um farveg Hjálparstarfs kirkjunnar. Prestar og djáknar í sóknum og á stofnunum veita fólki stuðning, ráðgjöf, sálgæslu auk leiðsagnar í andlegum efnum. Stuðningur við fólk í hjúskaparerfiðleikum er umtalsverður þáttur í starfi presta og með Fjölskylduþjónustu kirkjunnar er veitt dýrmæt þjónusta til stuðnings fjölskyldum.
Trúin og lífið
Þjóðkirkjan er evangelísk-lúthersk kirkja.
Stjórnsýsla
Biskup Íslands er æðsti embættismaður kirkjunnar. Hann hefur tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og starfi hennar í landinu. Við hlið biskups Íslands starfa vígslubiskupar í Skálholti og á Hólum.
Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum Þjóðkirkjunnar innan lögmæltra marka. Kirkjuþingsfulltrúar eru kjörnir til fjögurra ára í senn, 17 leikmenn og 12 vígðir menn. Forseti Kirkjuþings kemur úr hópi leikmanna.
Kirkjuráð fer með framkvæmdarvald í málefnum Þjóðkirkjunnar. Nánar tiltekið fer Kirkjuráð með framkvæmd sameiginlegra málefna Þjóðkirkjunnar, þar á meðal verkefna sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess
Biskupsstofa er embættisskrifstofa Biskups Íslands og skrifstofa Kirkjuráðs og kirkjuþings.
Sóknir og prófastsdæmi
Sóknin er grunneining þjóðkirkjunnar og vettvangur þjónustu hennar á hverjum stað. Sóknin er félag þess fólks innan þjóðkirkjunnar sem myndar söfnuð, þar sem fagnaðarerindið er boðað og sakramentin um hönd höfð og fólk leitast við að lifa samkvæmt boði Krists.
Innan þjóðkirkjunnar starfa rúmlega 270 sóknir. Þær eru skipulagðar í 9 prófastsdæmi og tvö umdæmi vígslubiskupa.
- Biskup Íslands
- Vígslubiskupar
- Prófastar
- Prestar
- Djáknar
- Organistar
- Starfsfólk
- Fjöldi sjálfboðaliða