Leyfum barninu að vera barn

mynd1Barnið þitt vex fljótt úr grasi. Það er dýrmætt fyrir það að fá að njóta þess að vera barn og þurfa ekki að takast á við erfiðar aðstæður að nauðsynjalausu eða axla ótímabæra ábyrgð.

Barnið sér og skilur heiminn eins og barn en ekki eins og fullorðinn einstaklingur. Barnið þitt þarf ást, umhyggju og skjól. Það þarf að hafa tækifæri til að leika sér eins og barn og tala eins og barn.

Hlífðu barninu við að verða vitni að og blandast inn í deilur fullorðinna. Barnið á ekki að bera ábyrgð á þér og gjörðum þínum.

Barnið á rétt á því að geta litið upp til þín sem foreldris og uppalanda. Traust og heiðarleg samskipti styrkja tilfinningatengsl á milli þín og barnsins og leggja grunn að velferð þess sem fullorðins einstaklings.