Þorum að axla ábyrgð sem uppalendur

mynd2Að ala upp barn reynir oft á þolinmæðina. Stundum er ábyrgðin yfirþyrmandi. En það bitnar bæði á þér og barninu ef þú hefur ekki kjark til að axla ábyrgð sem foreldri og uppalandi.

Ef vandamál koma upp, sem erfitt er að leysa, skaltu ekki hika við að leita aðstoðar hjá fagfólki. Talaðu líka við aðra foreldra og uppalendur til að fá ráðleggingar. Það styrkir þig í uppeldishlutverkinu að heyra hvernig aðrir takast á við það.

Enginn er fullkominn. Við gerum öll mistök. En þú ert fullorðinn einstaklingur og veist betur en barnið þitt hvað því er fyrir bestu. Hikaðu ekki gagnvart barninu þínu. Börnum líður betur og þau eru öruggari ef þeim eru sett mörk. Segðu nei þegar þess þarf og stattu við ákvörðun þína.