Viðurkennum barnið eins og það er

mynd3Barnið þitt er einstakt. Það hefur rétt á að njóta viðurkenningar eins og það er. Þú hefur þín sérkenni sem gera þig að þeirri einstöku persónu sem þú ert. Þú vilt fá að njóta þín á þínum eigin forsendum. Það vill barnið þitt líka.

Barnið þitt er sjálfstæður einstaklingur. Það getur tiltekna hluti og það hefur sína sérstöku hæfileika – og sín takmörk. Elskaðu barnið þitt eins og það er. Gættu þess að gera ekki óraunhæfar kröfur til barnsins.

Barnið þitt verður sterkari og ánægðari einstaklingur þegar þú hlúir að sérstökum eiginleikum þess og hæfileikum. Hrósaðu barninu fyrir það sem vel er gert og hvettu barnið til að bæta sig þegar þess gerist þörf.