Verum til staðar fyrir barnið
Barnið þitt þarf mikinn tíma. Það er mikilvægt að þú gefir þér tíma til að njóta samvista við barnið þitt, takir eftir því sem það er að gera og deilir með barninu gleði þess og sorgum.
Fullorðið fólk gegnir mörgum ólíkum hlutverkum sem oft getur reynst erfitt að samræma. Tímaskortur og streita bitna oft á þeim sem síst skyldi, barninu þínu. Þess vegna er mikilvægt að forgangsraða í lífinu og ákveða hvað skiptir mestu máli.
Ef þú hugsar of mikið um þín eigin vandamál, viðfangsefni og starfsframa er hætta á að þú veitir barninu þínu ekki nægan tíma. Þá getur svo farið að barnið fái ekki það skjól og öryggi sem það þarfnast.
Barnið þarf að finna skjól og öryggi á heimili sínu. Þú vinnur traust og trúnað barnsins með því vera til staðar þegar það þarf á þér að halda. Náin samskipti og tengsl á milli ykkar eru dýrmætari en nokkuð annað.