Munum að rækta okkur sjálf

mynd5Líf okkar gjörbreytist þegar við eignumst barn. Það hefur áhrif á vinnuna, áhugamálin og samskipti við aðra fullorðna. Við ráðum ekki lengur dagskránni alveg sjálf og þarfir okkar vilja gleymast.

Þú verður samt sem áður að gefa þér tíma fyrir þarfir þínar. Það er ekki hollt að lífið snúist eingöngu um barnið, hvorki fyrir barnið né fyrir þig. Það er heldur ekki hollt þegar lífið snýst aðeins um vinnuna. Meðalvegurinn er vandfundinn en happadrýgstur.

Sá sem er hamingjusamur gegnir betur því vandasama hlutverki að ala upp barn. Hugaðu að þínum eigin málum. Það er öllum nauðsynlegt að vera með sjálfum sér og finna frið í sálinni.

Leggðu rækt við tengsl þín við annað fullorðið fólk. Það sem lífið gefur þér sem fullorðnum einstaklingi fær barnið þitt margfalt til baka.