Hlífum barninu fyrir ónauðsynlegu áreiti

mynd6Sálir okkar eru brothættar. Barnið þitt sér oft og heyrir ýmislegt sem það hefur ekki þroska eða þekkingu til að skilja. Þess vegna eigum við fullorðnir ekki að ræða viðkvæm mál eða deila í viðurvist barna.

Það er hlutverk þitt sem foreldris og uppalanda að kenna barninu þínu að greina á milli þess sem er rétt og rangt. Þannig verður barnið þitt betur í stakk búið til að skilja umhverfi sitt og bregðast við skilaboðum sem því berast frá samfélaginu.

Ýmsir bera ábyrgð á því sem borið er á borð fyrir barnið þitt, þú sem foreldri og uppalandi, fjölskyldan, starfsfólk skóla og fjölmiðlar. En þú ræður mestu um hvað barnið þitt horfir á, les og heyrir inni á heimilinu.

Verndaðu barnið þitt fyrir fjölmiðlaefni og öðrum upplýsingum sem geta valdið því óþarfa áhyggjum og jafnvel skaðað það. Það er mikilvægur þáttur í þroska barnsins að kynnast veröldinni smám saman. En hugur barnsins er viðkvæmur og þarf á leiðsögn þinni að halda.