Setjum foreldrahlutverkið í forgang
Þegar þú eignast barn, hefur þú fengið vandasamasta og ábyrgðarmesta hlutverk, sem þér hlotnast um ævina, hlutverk foreldris og uppalanda. Upp frá því verður þú alltaf í þessu hlutverki en það tekur breytingum eftir því sem barnið vex og þroskast.
Vertu foreldri og uppaldandi af heilum hug. Mundu hvað skiptir máli í lífinu. Barnið þitt er barn í tiltölulega stuttan tíma. Njótið þessa tímabils saman. Þannig leggur þú grunn að traustum og gefandi gagnkvæmum samskiptum allt til leiðarloka.
Hugleiddu önnur hlutverk sem þú hefur tekið að þér. Veltu fyrir þér öðrum markmiðum sem þú hefur sett þér. Skipta þau meira máli en velferð barnsins þíns, þroski þess, hamingja og framtíð?
Sinntu foreldrahlutverkinu af alúð. Líttu á það sem þroskandi og gleðilega reynslu að fá tækifæri til að gegna þessu mikilvæga hlutverki. Árin sem þú átt með barninu þínu koma aldrei aftur.