Veitum frelsi en setjum mörk

mynd8Barnið þitt þarf svigrúm til að vera forvitið og kanna tilveruna. Þú þarft samt að setja barninu eðlileg mörk og kenna því hversu langt má ganga. Þú verður að taka tillit til þroska barnsins og oftar en ekki að hafa vit fyrir því.

Það veitir barninu þínu öryggiskennd að búa í traustu og reglusömu umhverfi. Það hefur ekki forsendur til að ákveða sjálft hvað er æskilegt og hvað ekki. Settu barninu fáar en skýrar reglur sem hjálpa því að skynja rétt frá röngu.

Barnið þitt þarf líka frelsi til að vaxa og dafna sem sjálfstæður einstaklingur. En það að leyfa allt er ekki frelsi heldur ábyrgðarleysi.

Barnið þitt öðlast smám saman þroska, þekkingu og reynslu til að axla ábyrgðina sem fylgir því að velja og hafna. Þar til það nær fullum þroska hvílir þessi ábyrgð á þínum herðum.

Misvísandi skilaboð frá umhverfinu rugla barnið og gera það óhæft til að taka skynsamlegar ákvarðanir. Ekki leyfa eitt í dag en banna það á morgun. Hafðu skynsemina að leiðarljósi, settu mörk, útskýrðu þau og fylgdu reglunum eftir.