Verum barninu mikilvæg

mynd9Sterk tilfinningaleg tengsl eru barninu þínu mikilvæg allt frá frumbernsku til fullorðinsára. Jákvæð og uppbyggjandi samskipti stuðla að tilfinningalegu öryggi barnsins og hjálpa því að takast á við lífið upp á eigin spýtur.

Það er mikilvægt að barnið geti átt trúnað þinn og geti treyst á umhyggju þína. Þeir sem skynja þarfir barna sinna og eru næmir á tilfinningar þeirra auka líkurnar á traustum tilfinningaböndum og eignast þannig trúnað barna sinna.

Það skiptir miklu máli fyrir barnið þitt að geta snúið sér til þín þegar á móti blæs. Á unglingsárunum sækir barnið oft í vinahópinn eftir ráðgjöf en það er barninu nauðsyn að geta leitað til þín þegar á þarf að halda. Vertu til staðar þegar þín er þörf.