Um verkefnið
Ágæta foreldri og uppalandi
Börnin eru dýrasti fjársjóður sem okkur er trúað fyrir. Uppeldi barna er því eitt af þeim verkefnum sem við viljum öll leysa eins vel af hendi og okkur er mögulegt.
Sem betur fer krefst uppeldi barna ekki sérfræðikunnáttu. Móðir náttúra hefur séð til þess. Við sækjum fyrirmyndir og leiðsögn til okkar eigin foreldra og uppalenda og nýtum m.a. reynslu okkar og siðferðileg og samfélagsleg viðmið til að koma börnum okkar til manns. Þar með er ekki sagt að við getum ekki staðið einstaka sinnum frammi fyrir því að eitthvað sé ekki eins og það á að vera. Stundum yfirsést okkur eitthvert mikilvægt atriði í uppeldi barnsins eða í samskiptum okkar við það. Þegar okkur verður þetta ljóst er mikilvægt, bæði fyrir barnið og fyrir okkur sjálf, að við látum ekki þar við sitja heldum ráðum bót á því.
Í þessum bæklingi er að finna tíu almenn heilræði fyrir foreldra og uppalendur barna sem hafa reynst mörgum notadrjúg leiðsögn. Það er ósk okkar, sem stöndum að útgáfunni og dreifingu bæklingsins inn á sérhvert íslenskt heimili, að heilræðin tíu eigi eftir að vekja foreldra og uppalendur til umhugsunar um uppeldi barna sinna.
Forsætisráðuneytið
Þjóðkirkjan
Umboðsmaður barna
Velferðarsjóður barna
Heimili og skóli
Hafðu samband
Verkefnisstjóri
- Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, kennari
Sími: 661-1105
Netfang: astahg@internet.is
Verkefnisstjórn
- Halldór Reynisson, Biskupsstofu
Netfang: halldor.reynisson@kirkjan.is - Steingrímur S. Ólafsson, forsætisráðuneytinu
Netfang: steingrimur.s.olafsson@for.stjr.is - Valgerður Ólafsdóttir, velferðarsjóði barna
Netfang: valao@itn.is - Ingibjörg Rafnar, umboðsmaður barna
Netfang: ub@barn.is - Elín Thorarensen, Heimili og skóla
Netfang: elin@heimiliogskoli.is
Að átakinu standa
- Forsætisráðuneytið
- Þjóðkirkjan
- Umboðsmaður barna
- Velferðarsjóður barna
- Heimili og skóli
Samstarfsaðilar