Æskulýðsdagurinn 2010: Lát trú þína bera ávöxt
Yfirskrift æskulýðsstarfs Þjóðkirkjunnar á þessum vetri er Lát trú þína bera ávöxt. Á æskulýðsdaginn verður þetta efni tjáð með fjölbreyttum hætti, t.d. með blöðrumessu fyrir alla fjölskylduna kl. 11 í Neskirkju þar sem Barbara trúður (Halldóra Geirharðsdóttir) spjallar við Sigurvin Jónsson um ávöxt heilags anda Guðs í lífinu. Um kvöldið verður sameiginleg æskulýðs- og margmiðlunarmessa ÆSKR í Neskirkju kl. 20 undir yfirskriftinni Bænarý. Sjá nánar á www.neskirkja.is og um aðrar guðsþjónustur á heimasíðum safnaðanna.
María Ágústsdóttir, 5/3 2010 kl. 20.58