Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Að missa barn

Sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur flytur erindi um barnsmissi á samveru Nýrrar dögunar n.k. fimmtudagskvöld, 11. mars. Samveran verður í safnaðarheimili Háteigskirkju. Hún hefst kl. 20 og er öllum opin. Sjá www.nydogun.is. Sr. Vigfús Bjarni starfar sem sjúkrahúsprestur á barnaspítala Hringsins. Hann er með M.th. próf í sálgæslu frá Luther Seminary í St. Paul í Bandaríkjunum og hefur víðtæka reynslu af því að starfa með foreldrum sem misst hafa barn.

Hópastarf fyrir þá sem misst hafa barn verður einnig kynnt á samverunni.

Ný dögun eru félagasamtök sem hafa það að markmiði að styðja við syrgjendur og fræða um sorg og sorgarviðbrögð. Samtökin voru stofnuð árið 1987.

María Ágústsdóttir, 8/3 2010 kl. 12.36

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS