Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Föstuvökur í Hallgrímskirkju

Önnur föstuvakan í röð fjögurra verður haldin í Hallgrímskirkju miðvikudagskvöldið 10. mars kl. 20. Stundin er byggð upp í kring um Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar með söng og lestri en einnig gefur leikmaður vitnisburð um hlutverk trúarinnar í lífi sínu. Leitað er kyrrðar í tónlist og bæn. Allir eru velkomnir og boðið upp á samfélag í safnaðarsal á eftir.

María Ágústsdóttir, 9/3 2010 kl. 12.58

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS