Helgiganga og helgun hurða
Í Hallgrímskirkju verður mikið um dýrðir á pálmasunnudag, þann 28. mars nk. Hefst þá Kirkjulistahátíð 2010 með helgigöngu kl. 10.30 upp Skólavörðustíg að Hallgrímskirkju. Hátíðarmessa verður kl. 11 með prédikun biskups Íslands og verða þá nýjar hurðir kirkjunnar, stórbrotið listaverk eftir Leif Breiðfjörð, helgaðar. Eftir messuna verður opnuð sýning Ólafar Nordal, en hún er myndlistarmaður Kirkjulistahátíðar. Kl. 17 heldur hátíðin áfram með orgeltónleikum Hans Ola Ericsson, organista frá Svíþjóð. Sjá www.kirkjulistahatid.is.
María Ágústsdóttir, 25/3 2010 kl. 13.17