Helgihald um bænadaga
Að kvöldi miðvikudagsins 31. mars verður dagskrá í Háteigskirkju sem ber nafnið Í skugga krossins. Þar ræðir dr. Hjalti Hugason um birtingarmyndir þjáningarinnar og boðið upp á vandaðan tónlistarflutning. Kl. 11 á skírdag er samkirkjuleg útvarpsguðsþjónusta frá kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg. Á skírdagskvöld kl. 20 er Taizé-messa í Háteigskirkju og víða eru kvöldmessur með afskrýðingu altaris. Í Laugarneskirkju verða tónleikar kl. 23 að kvöld skírdags. Á föstudaginn langa eru guðsþjónustur kl. 11 og/eða kl. 14. Jóhannesarpassían verður flutt í Langholtskirkju kl. 20. Sjá heimasíður safnaðanna.
María Ágústsdóttir, 30/3 2010 kl. 13.08