Kórahátíð í Reykjavík
Kórahátíðin Nordic-Baltic fer fram í Reykjavík dagana 17. - 21. ágúst 2010. Í Hallgrímskirkju koma fram átta kórar frá átta löndum og flytur hver kór eigin dagskrá. Í dag, 18. ágúst, munu kórarnir syngja í Hallgrímskirkju kl. 12.30 og svo aftur kl. 20.00. Kórarnir munu vera í Hallgrímskirkju aftur næstkomandi föstudag og á Menningarnótt, sem er á laugardaginn kemur. Framkvæmdastjóri kórahátíðarinnar er Margrét Bóasdóttir sópransöngkona og kórstjórnandi. Sjá nánar á http://choral.iii.is/
María Ágústsdóttir, 18/8 2010 kl. 11.37