Lokatónleikar Alþjóðlegs orgelsumars
Helgina 14. og 15. ágúst eru lokatónleikar Alþjóðlegs orgelsumars að þessu sinni, en minnt er á hádegistónleika Schola Cantorum sem verða áfram á miðvikudögum í ágúst. Á þessari síðustu orgeltónleikatvennu leikur einn fremsti orgelleikari Norðmanna, Halgeir Schiager. Tónleikarnir á laugardeginum eru kl. 12 og á sunnudeginum kl. 17.
María Ágústsdóttir, 12/8 2010 kl. 22.58