Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Nýtt upphaf: Barna- og æskulýðsstarf vetrarins

Nú er barna- og æskulýðsstarf að taka á sig vetrarmynd í kirkjum prófastsdæmisins. Foreldramorgnar hafa sumsstaðar verið starfandi í sumar og sögustundir fyrir börnin í sunnudagsmessum. Fermingarnámskeið hafa þegar verið haldin í nokkrum söfnuðum, en annars staðar fer skráning ungmennanna fram á næstu vikum. Kórastarf er í undirbúningi og sunnudagaskólinn hefst víða sunnudaginn 5. september. Kynnið ykkur starfið á heimasíðum safnaðanna.

María Ágústsdóttir, 30/8 2010 kl. 11.24

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS