Opið hús fyrir syrgjendur
Opið hús á vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð, verður í safnaðarheimili Háteigskirkju fimmtudagskvöldið 12. ágúst kl. 20. Þar getur fólk komið saman, spjallað, miðlað sinni reynslu, eða hlustað og fengið sér kaffi. Venjulega er byrjað með stuttu innleggi en svo er samveran í höndum þeirra sem koma en þó er enginn tilknúinn til að tjá sig. Samtalið er bundið trúnaði. Í bréfi frá samtökunum segir:
Margir syrgjendur hafa haft orð á því að finna fyrir litlum stuðningi á sumrin. Þeir sem veita stuðning eru þá gjarnan í sumarfríi og félagsstarf fyrir syrgjendur liggur niðri. Hins vegar fer sorgin ekki í sumarfrí. Stjórn Nýrrar dögunar vill því reyna að bæta hér úr og hefur ákveðið að bjóða upp á opið hús í safnaðarheimili Háteigskirkju í júlí, ágúst og september.
María Ágústsdóttir, 11/8 2010 kl. 13.35