Tónleikar fyrir Seltjarnarneskirkju
Frábærir tónlistarmenn munu koma fram á tvennum tónleikum sem haldnir verða hér á Seltjarnarnesi í lok ágúst til ágóða fyrir Seltjarnarneskirkju. Framundan er að mála þak kirkjunnar sem mun kosta á aðra milljón króna. Munu tónlistarmennirnir gefa vinnu sína og fjáröflunin eiga sér stað með sölu aðgöngumiða 2000 kr á mann. Fyrri tónleikarnir eru 26. ágúst og þeir síðari 29. ágúst. Á heimasíðu Seltjarnarneskirkju segir:
Fyrri tónleikarnir verða fimmtudaginn 26. ágúst um kvöldið í Félagsheimili Seltjarnarness. Stórhljómsveit Tónlistarskóla Seltjarnarness leikur undir forystu Kára Húnfjörð. Þessir tónleikar eru einskonar upphitun hljómsveitarinnar fyrir þátttöku hennar í Jazzhátíð Reykjavíkur og eru á lagalistanum fjölbreytt jazztónlist með ungum efnilegum einleikurum. Sérstakur gestur á tónleikunum verður hinn kunni og vinsæli jazzpíanóleikari Sunna Gunnlaugs með hljómsveit sína. – Húsið verður opnað kl. 19 og hægt að fá keyptan kvöldverð sem hið góðkunna fyrirtæki “Veislan” mun hafa á boðstólum. Leikin verður létt tónlist meðan snætt er. Sjálfir tónleikarnir hefjast síðan kl. 20:30.
Síðari tónleikarnir verða sunnudaginn 29. ágúst kl. 17 í kirkjunni undir yfirskriftinni: “Bach af strengjum Gunnars Kvaran”. Mun hinn frábæri sellóleikari flytja nokkur einleiksverk hins mikla meistara Johanns Sebastian Bach og kynna verkin fyrir áheyrendum. Einnig munu þeir Gunnar og Friðrik Vignir Stefánsson tónlistarstjóri og organisti kirkjunnar leika saman eitt verk Bachs. – Í hléi verður kaffi og spjall tónleikagesta í safnaðarheimilinu.
Þessir gjörólíku tónleikar eru til þess fallnir að vekja áhuga fólks með mjög mismunandi tónlistarsmekk og engin vafi á að þeir verði hinir ánægjulegustu. Það er sóknarnefnd og Listvinafélag Seltjarnarneskirkju sem standa að tónleikunum.
María Ágústsdóttir, 22/8 2010 kl. 11.42