Alfanámskeið í Grensáskirkju
Fimmtudagskvöldið 3. febrúar kl. 20-21 er kynningarkvöld fyrir ALFA-námskeið í Grensáskirkju en þar er fjallað um grundvallaratriði kristinnar trúar. Námskeiðið haldið í samstarfi við Kristniboðssambandið og stendur yfir í 10 vikur. Sjá www.alfa.is.
Námskeiðið verður á fimmtudagskvöldum, tíu fimmtudagskvöld í röð, en einnig er gert ráð fyrir samveru eina helgi í mars. Hvert fimmtudagskvöld hefst samveran með sameiginlegri máltíð kl. 19. Að henni lokinni er fræðsla og svo umræður. Dagskrá lýkur væntanlega í síðasta lagi 21:45.
Kynningarkvöld verður sem fyrr segir í Grensáskirkju fimmtud. 3. febr. kl. 20 en námskeiðið sjálft hefst svo viku síðar, 10. febr., kl. 19. Námskeiðið kostar kr. 5.900,- og fer það gjald í að greiða matinn og námsgögn.
Skráning er í Grensáskirkju í síma 528 4410 eða á grensaskirkja@kirkjan.is. Verið velkomin á kynningarkvöldið!
María Ágústsdóttir, 31/1 2011 kl. 10.46