Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Hátíðarhljómar við áramót

Síðustu tónleikar ársins hér á Íslandi verða að venju í Hallgrímskirkju á gamlársdag, 31. desember, kl. 17. Listvinafélag Hallgrímskirkju býður í 19. sinn upp á tónleika undir yfirskriftinni Hátíðahljómar við áramót. Þeim er ætlað að kalla fram hátíðleika sem hæfir þegar ár er kvatt og nýju ári heilsað. Á þeim undanförnu 18 árum sem Ásgeir, Eiríkur og Hörður hafa glatt tónleikagesti á gamlárskvöld með leik sínum hafa þeir tvisvar boðið einsöngvurum að koma fram með sér, þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Kristni Sigmundssyni. Í tilefni af 30. afmælisári Listvinafélagsins bætast þeir Einar St. Jónsson trompetleikari og Eggert Pálsson nú í hópinn.Lúðraþytur og trumbusláttur hafa um aldir tengst hátíðum. Fyrirmyndir þess má finna í elstu sálmabók kirkjunnar, Saltaranum, þar sem Drottinn er lofaður með bumbum og málmgjöllum. Lúðraköll – fanfarar- tengjast konunglegum lífvörðum og herkvaðningu af ýmsum toga. Í kirkjunni hafa þessi hljóðfæri meðal annars verið nýtt til að lýsa upprisu Krists á páskum og dýrðarsöng englanna á Betlehemsvöllum.  Á barroktímanum voru þessi hljóðfæri í hávegum höfð. Stóratburðum í lífi safnaða og einstaklinga var lyft upp með gjallandi hljómi. Eftir því sem tímar liðu og orgelið þróaðist kom í ljós, hve vel þessi hljóðfæru áttu saman. Í dag býður orgelið upp á möguleika heillar hljómsveitar með strengjum, flautum og lúðrum.

Tónlist  tónleikanna á  öll uppruna sinn á barokktímabilinu. Flest verkin hafa hljómað hér áður en nú heyrast í fyrsta skipti Fanfar eftir Zelenka og Sónata eftir Gabrieli. Af hefðbundnu verkunum má nefna Forleik að Te Deum eftir Charpentier (EBU lagið) og Forleik að Flugeldasvítunni eftir Handel. Þessi verk hafa Eiríkur og Ásgeir umritað fyrir þrjá trompeta auk þess sem Eggert hefur unnið pákurödd fyrir þau. Þá eru einnig á efnisskránni tvær sónatínur eftir Johann Pezel og hið fræga Adagio eftir Albinoni sem Ítalinn Giazotto umritaði.

Forsala aðgöngumiða er í Hallgrímskirkju og er hún opin kl. 9-17, sími 510 1000.
Miðaverð til listvina er 1.500 en almennt verð er 2.900- annað afsláttarverð er 2.000 kr.

Ásgeir Hermann Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson luku allir tónlistarnámi við Tónlistarskólann í Reykjavík áður en þeir héldu til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Ásgeir lauk BM prófi frá Mannes College of Music í New York, Eiríkur lauk BA prófi frá Merklee College of Music í Boston og MFA gráðu frá Californian Institute of the Arts í Los Angeles og Einar BM prófi frá Indiana University. Í dag eru þeir allir fastráðnir hljóðfæraleikarar við Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að vera mjög virkir í tónlistarlífi höfuðborgarsvæðisins. Þeir hafa allir leikið með Kammersveit Reykjavíkur,  Kammersveit Hallgrímskirkju, Hljómsveit Íslensku óperunnar og leikið með ýmsum stórsveitum, svo sem Stórsveit Ríkisútvarpsins og Stórsveit Reykjavíkur auk þess sem Eiríkur er einn af stofnfélögum Caput hópsins. Einnig kenna þeir trompetleik við tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Eggert Pálsson stundaði nám á píanó og slagverk við Tónlistarskólann í Reykjavík og hélt þaðan til Vínar þar sem hann lagði stund slagverksnám við Listaháskólann í Vín, Austurríki. Hann hefur lengi verið fastráðinn pákuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands auk þess að taka virkan þátt í íslensku tónlistarlífi undanfarna þrjá áratugi. Hann er félagi í slagverkshópnum Benda og Kammersveit Reykjavíkur. Hann hefur einnig leikið með tónlistarhópnum Caput og er félagi í sönghópnum Voces Thules sem flytur margar tegundir söngtónlistar, helga sem heiðna.

 Hörður Áskelsson hefur verið organisti og kantor Hallgrímskirkju allt frá því hann lauk framhaldsnámi í Düsseldorf í Þýskalandi árið 1982. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs kirkjunnar og stóð meðal annars að stofnun Listvinafélags Hallgrímskirkju, Kirkjulistahátíðar og Alþjóðlegs orgelsumars við Hallgrímskirkju. Þá stofnaði hann bæði Mótettukór Hallgrímskirkju (1982) og Kammerkórinn Schola Cantorum (1996) sem hann hefur stjórnað frá upphafi. Sem organisti hefur Hörður haldið tónleika í mörgum stærstu kirkjum Evrópu, m.a. í St. Michaelis í Hamborg, Kölnardómkirkju, St. Sulpice í París, dómkirkjunni í Brüssel og dómkirkjunni í Helsinki. Hann hefur hlotið margs háttar viðurkenningar fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á Íslandi, þ.á.m. Hin íslensku tónlistarverðlaun og Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu.

 Hörður, Ásgeir og Eiríkur komu fram á tónleikum í Fílharmoníunni í St. Pétursborg fyrir troðfullu húsi ( 2000 manns) haustið 2005 við frábærar undirtektir og einnig var þeim boðið að leika á tónlistarhátíðinni í Frankfurt- Höchst í Þýskalandi og Akureyrarkirkju. Geisladiskurinn Trompetería með þeim félögum hefur hlotið mikla dreifingu og er til sölu í Hallgrímskirkju og víðar.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 28/12 2011 kl. 13.22

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS