Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Íslendingar í Noregi hugsa heim

Þann s.l. 19. desember afhenti Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, fyrrum sendiherra Íslands í Noregi, Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð 100.000 norskar krónur, eða rúmlega tvær milljónir íslenskra króna, frá íslenska söfnuðinum í Noregi.  Er styrknum ætlað að renna til hjálparstarfs kirkjunnar á Íslandi fyrir jólin og vilja Íslendingar í Noregi með því leggja löndum sínum heima lið. Með styrknum fylgja hlýjar jólakveðjur. Styrkurinn er veittur í nafni Ólafíusjóðs, sem starfar á vegum íslenska safnaðarins og er Sigríður Dúna formaður sjóðsstjórnar.  Sigríður Dúna afhenti Jónasi Þ. Þórissyni framkvæmdastjóra Hjálparstarfsins styrkinn í Dómkirkjunni og var sóknarpresturinn Hjálmar Jónsson einnig viðstaddur.

Ólafíusjóður er nefndur í höfuðið á trúkonunni Ólafíu Jóhannsdóttur, sem starfaði meðal þeirra sem minnst máttu sín í Osló upp úr aldamótunum 1900.  Hlutverk sjóðsins er að aðstoða bágstadda Íslendinga bæði í Noregi og á Íslandi. Ólafía var brautryðjandi í hjálparstarfi á sinni tíð og hafa Norðmenn heiðrað minningu hennar með ýmsum hætti. Brjóstmynd af Ólafíu stendur nærri Vaterlandbrúnni í Osló og í nágrenninu er gata nefnd eftir henni; Olafiagangen. Ólafía sinnti starfi sínu einkum meðal þeirra kvenna sem minnst máttu sín í samfélaginu og urðu að þola kynferðisofbeldi af ýmsu tagi. Þegar Norðmenn settu á stofn miðstöð fyrir leiðbeiningar um getnaðarvarnir og meðhöndlun kynsjúkdóma nefndu þeir hana því Olafiaklinikken í höfuðið á Ólafíu.

Krossmen Ólafíu barst eftir krókaleiðum til Íslands og er það varðveitt í Dómkirkjunni í Reykjavík. Því þótti við hæfi að afhenda styrkinn í kirkjunni, sem einnig var sóknarkirkja Ólafíu á Íslandi. Í Noregi hefur mynd krossmensins verið saumuð út í hökul og stólu prests íslenska safnaðarins og í hverri messu fara fram samskot í sjóðinn sem ber nafn hennar.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 20/12 2011 kl. 14.01

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS