Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Jólatónleikar með Mótettukór Hallgrímskirkju

Mótettukór Hallgrímskirkju hefur frá stofnun sinni árið 1982 glatt tugþúsundir Íslendinga á aðventunni, og skipa jólatónleikar hans veglegan sess í ríkulegu tónleikahaldi í Reykjavík. Á þessum þrítugustu jólatónleikum Mótettukórsins verður Þóra Einarsdóttir sópransöngkona gestasöngvari með kórnum. Haldnir verða tvennir tónleikar í Hallgrímskirkju, miðvikudaginn 28. desember kl. 20 og fimmtudaginn 29. desember kl. 20Á tónleikunum flytur Mótettukórinn alþjóðlega efnisskrá á átta tungumálum, þ. á m. hið pólska „Dzisiaj w Betlejem“ og hið hollenska „Nu zijt wellekome“ í glænýjum útsetningum, auk hins tékkneska „Hajej, nynej, Jezísku“, hins rússneska „Богородице дѣво“ (Bogoróditse Djevo) eftir S. Rachmaninoff og hins franska „Cantique de Noël“ eftir Adolphe Adam sem Íslendingar þekkja flestir sem „Ó, helga nótt“. Einnig verða fluttir hugljúfir jólasálmar og aríur eftir Sigvalda Kaldalóns, Áskel Jónsson, Franz Gruber, Hörð Áskelsson, J.S. Bach og Johann Eccard, auk þess sem frumflutt verða tvö ný verk eftir Halldór Hauksson og Hreiðar Inga Þorsteinsson. Auk Mótettukórsins og Þóru koma fram þau Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, Daði Kolbeinsson óbóleikari og Björn Steinar Sólbergsson á hið stóra Klais-orgel Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Haldnir verða tvennir tónleikar í Hallgrímskirkju, miðvikudaginn 28. desember kl. 20 og fimmtudaginn 29. desember kl. 20. Almennt verð: 3.900 kr. / meðlimir Listvinafélags Hallgrímskirkju og nemendur: 2.000 kr. / Afsláttarverð (í forsölu til 20.12 og hjá meðlimum Mótettukórsins): 3.000 kr.

Vegna tímasetningar tónleikanna gefst einstakt tækifæri á að gefa miða á tónleikana í jólagjöf. Einnig er nú kominn út glænýr og hátíðlegur jóladiskur með Mótettukórnum og Kristni Sigmundssyni, Heilög stund á jörð, sem inniheldur upptöku af uppseldum jólatónleikum síðasta árs og fangar tónleikastemninguna og jólaandann í Hallgrímskirkju.
Í tilefni útgáfunnar býðst tónleikagestum, gegn framvísun miða, að kaupa diskinn á sérstöku afsláttarverði í Hallgrímskirkju, eða kr. 2.000. Diskurinn er fáanlegur í öllum helstu plötubúðum.
Miðasala og nánari upplýsingar í Hallgrímskirkju: sími 510 1000 • www.listvinafelag.is

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 20/12 2011 kl. 11.11

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS