Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

10 ára afmæli Sóltúns fagnað með hátíðarguðsþjónustu

Hjúkrunarheimilið Sóltún á 10 ára starfsafmæli um þessar mundir. Af því tilefni var hátíðarguðsþjónusta 8. janúar. Íbúar, starfsfólk og gestir fjölmenntu og tóku þátt í messunni með biskupi Íslands, prófasti og héraðspresti Reykjavíkurprófastsdæmis vestra auk djákna heimilisins Jóni Jóhannssyni. 
Sjá myndir frá athöfninni

Anna Birna Jensdóttir forstjóri Sóltún sagði frá því við þetta tækifæri að allt frá upphafi hefur verið trúarleg þjónusta á heimilinu sem hefur falið í sér helgihald, sálgæslu, samfylgd með íbúum, aðstandendum og starfsfólki. Sóltún hefur þróað trúarlegu þjónustu sína og þegar heimilið opnaði voru þrír djáknar kallaðir til starfa, hver og einn í 50% stöðugildi. Hugmyndin var að einn djákni væri á hverri hæð með tvær deildir. Þannig var skipulagið í nokkur ár en nú er einn djákni þar í fullu starfi.

Boðið hefur verið upp á sérstaka stuðningshópa fyrir aðstandendur. Prestþjónusta er sótt til sóknarprests Laugarnessóknar og boðið er upp á guðþjónustur reglulega í samkomusal heimilisins.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 11/1 2012 kl. 14.34

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS