12 spora námskeið í Háteigskirkju - kynningarfundur
Miðvikudaginn 11. janúar nk. verður kynningarfundur í Háteigskirkju kl. 19.30 fyrir 12 spora námskeiðið, Andlegt ferðalag - með Vinum í bata. Námskeiðið verður haldið í safnaðarheimili Háteigskirkju. Allir áhugasamir, utan sóknar sem innan, eru hvattir til að kynna sér málið og láta þetta ekki framhjá sér fara.
Það eru allir hjartanlega velkomnir og nánari upplýsingar má finna hér…
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 9/1 2012 kl. 15.42