Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika
Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kristninnar hefst á miðvikudaginn 18.janúar. Þessa viku sameinast kristið fólk um allan heim í bæn fyrir einingu. Bænavikan er undirbúin af kirkjum sem tilheyra samkirkjulegum samtökum er nefnast Alkirkjuráðið (World Council of Churches) og kaþólsku kirkjunni.
Kirkjum á ákveðnu svæði heims er falið að undirbúa efnið og árið 2012 kemur það frá Póllandi þar sem fólk frá ýmsum kirkjudeildum mótmælenda, kaþólskum kirkjum og rétttrúnaðar, unnu að undirbúningi. Þemað er „Sigur Krists umbreytir okkur!“ og kemur úr I. Korintubréfi, 15:51-58 og vísar í sögu Póllands og orðræðu sigurs og ósigurs.
Upplýsingar um dagskrá, ritningarlestra og fleira má nálgast á vef bænavikunnar
Dagskrá bænavikunnar á höfuðborgarsvæðinu
Miðvikudagur 18. janúar:
Kl. 12.00 Bænastund í Friðrikskapellu, Hlíðarenda
Kl. 20.00 Samkoma í Kristskirkju, Landakoti
Fimmtudagur 19. janúar:
Kl. 18.00 Blessun vatnsins í Nauthólsvík
Kl. 20.00 Samkoma á Hjálpræðisher
Föstudagur 20. janúar:
Kl. 20.00 Samkoma í Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti.
Sunnudagur 22. janúar:
Kl. 11.00 Útvarpsguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju.
Þriðjudagur 24. janúar
Kl. 16.00 Málþing í Seltjarnarneskirkju:Samkirkjulegt starf heima og að heiman. María Ágústsdóttir doktorsnemi flytur erindi. Fulltrúar trúfélaga bregðast við.
Kaffi og umræður.
Málþinginu lýkur kl. 18.00
Miðvikudagur 25. janúar
Kl. 12.00 Bænastund í Friðrikskapellu, Hlíðarenda
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 16/1 2012 kl. 15.13