Ríkiskirkja, þjóðkirkja og mannréttindi – vandi?
Þann 27. janúar kl. 12.00 heldur Halvor Nordhaug biskup í Bergen erindi sem kallast “Ríkiskirkjan, þjóðkirkja og mannréttindi – vandi?” Fyrirlesturinn verður haldinn í kapellu Háskólans í Aðalbyggingu og hefst kl. 12:00. Þar fjallar Halvor Norhaug um spurninguna hvort ríkiskirkjuskipan í Noregi brjóti í bága við trúfrelsi og hvort mögulegt sé a að halda fast við ríkiskirkju í fjölhyggjusamfélagi nútímans.
Undanfarna áratugi hefur aukin aðgreining kirkju og ríkis átt sér stað í Noregi. Þá hefur kirkjuskipan landsins verið mjög til umræðu. Bæði í kirkjunni og utan hennar gætir þeirrar skoðunar að ríkiskirkjuskipan brjóti í bága við trúfrelsi. Í fyrirlestrinum verður glímt við spurninguna um hvort svo sé og hvort mögulegt sé að halda fast við ríkiskirkju í fjölhyggjusamfélagi nútímans.
Í ár verður norsku stjórnarskránni breytt m.a. í þá veru að ríkisstjórnin mun ekki lengur skipa biskupa landsins í embætti. Það er þó álit margra að breytingarnar gangi of skammt. Aðrir telja að ríkið geti ekki að fullu skilist við kirkjuna án þess að snúa baki við sögu sinni og sérkennum. — Varpað verður ljósi á umræðuna með dæmum frá öðrum löndum í Evrópu.
Halvor Nordhaug (f. 1953) var áður forstöðumaður stofnunar í kennimannlegum fræðum við Det Teologiske Menighetsfakultet í Ósló. Hann hefur ritað fjölda bóka og greina m.a. um tengsl ríkis og kirkju.
Fyrirlesturinn er í boði Guðifræði- og trúarbragðafræðideildar Hí og norska sendiráðsins.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 26/1 2012 kl. 11.24