Samkirkjumál heima og að heiman
Málþing um samkirkjumál verður haldið í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 24. janúar kl. 16.00-18.00. Sr. María Ágústsdóttir, doktorsnemi, fjallar um samkirkjumál hérlendis og erlendis. Viðbrögð við erindi hennar veita sr. Eric Guðmundsson, Aðventkirkjunni, sr. Jakob Rolland, Kaþólsku kirkjunni og Vörður Leví Traustason, forstöðumaður, Hvítasunnukirkjunni. Stjórnandi er Steinunn A. Björnsdóttir.
Málþingið er hluti af alþjóðlegri samkirkjulegri bænaviku og er skipulagt af Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 24/1 2012 kl. 12.08