Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Trú og trúarbrögð á 21. öld

Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnun Háskóla Íslands efna til málþings í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 20. janúar kl. 13 – 16. Yfirskrift málþingsins er: Trú og trúarbrögð á 21. öld.  Aðalfyrirlestur flytur dr. Hjalti Hugason, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Heiti fyrirlestursins er „Trú og trúarstofnanir á 21. öldinni - áskoranir og möguleikar.“

Viðbrögð við erindi dr. Hjalta flytja:
 Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur og sjálfstætt starfandi fræðimaður í Reykjavíkurakademíunni.
Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, jarðfræðingur og sviðsforseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur, héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og stundakennari við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.
Málþingið er öllum opið.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 18/1 2012 kl. 14.34

     

    Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · Kerfi RSS