Kirkjustarf eldri borgara
Fimm virku daga vikunnar bjóða kirkjurnar tíu í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra upp á fjölbreytt starf fyrir eldri borgara. Á laugardögum er hlé, en svo hefst ný vika hvern sunnudagsmorgun með messum fyrir alla aldurshópa. Ykkur er velkomið að prenta út eftirfarandi lista og bjóða fólki með ykkur í kirkjuna.
Kirkjustarf eldri borgara í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
Mánudagar
Háteigskirkja kl. 13: Samverustundir í Setrinu. Félagsvist, söngur, upplestur og kaffiveitingar.
Þriðjudagar
Áskirkja kl. 10-14: Opið hús. Kaffi, spjall, slegið á létta strengi. Hádegisbæn kl. 12, léttur málsverður.
Grensáskirkja kl. 12: Kyrrðarstund með altarisgöngu og fyrirbæn, léttur málsverður.
Hallgrímskirkja kl. 11-14: Opið hús í kórkjallara (sjá föstudaga). Bænastund kl. 10.30 í kapellu.
Laugarneskirkja kl. 20: Kvöldsöngur í kirkjunni, kaffispjall í safnaðarheimili á eftir
Neskirkja kl. 16.30-18.30: “Litli kórinn”, kór eldri borgara æfir.
Seltjarnarneskirkja kl. 11: Opið hús fyrsta þriðjudag mánaðarins, helgistund, erindi, hádegisverður. Kl. 12 er kyrrðarstund með fyrirbæn.
Miðvikudagar
Áskirkja kl. 11-12: Samverustund, hreyfing og bæn.
Bústaðakirkja kl. 13-16.30: Opið hús, helgistund, söngur, handavinna, spil, kaffiveitingar.
Dómkirkjan kl. 12: Kyrrðarstund, fyrirbænastund, léttur málsverður á eftir.
Grensáskirkja kl. 14-16: Opið hús, biblíulestur, bænastund, samræður, kaffiveitingar.
Háteigskirkja kl. 11: Fyrirbænastund í kirkjunni, svo léttur málsverður og síðan brids í Setrinu kl. 13
Langholtskirkja kl. 12-16.30: Opið hús, helgistund, hádegisverður, söngur, handavinna, spil, kaffiveitingar
Neskirkja kl. 15-17: Opið hús, fjölbreytt dagskrá og kaffiveitingar. Kl. 12.20 eru fyrirbænamessur með altarisgöngu.
Fimmtudagar
Áskirkja kl. 14-16: Opið hús, samsöngur með organistanum, kaffiveitingar.
Dómkirkjan kl. 14-17: Opið hús í Safnaðarheimilinu við Lækjargötu.
Hallgrímskirkja kl. 12: Kyrrðarstund í kirkjunni. Léttur málsverður á eftir.
Háteigskirkja kl. 14: Vinafundir í Setrinu (okt, nóv, feb, mars)
Laugarneskirkja kl. 14-16: Opið hús (annan hvern fi), helgistund, upplestur, spjall, kaffiveitingar. Kyrrðarstund kl. 12 með léttum málsverði á eftir.
Föstudagar
Hallgrímskirkja: Opið hús kl. 11-14. Leikfimi, söngur, spil o.fl. Heitt á könnunni og léttur málsverður.
Háteigskirkja: Aðstoð við að spila brids í Setrinu kl. 13-15. Kaffiveitingar.
Heimasíður safnaðanna
www.kirkja.is (Bústaðakirkja)
Einnig er Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar með áhugaverð námskeið (www.kirkjan.is/leikmannaskoli)