Nú leikur blær um lífsins vor
Eftir Hjálmar Jónsson
Þetta ljóð bar sigur úr býtum í samkeppni Dómkórsins um brúðkaupssálma, haustið 2004.
Nú leikur blær um lífsins vor
og ljóma slær á gengin spor
er Drottinn blessar stað og stund,
við stefnum hingað á hans fund.
Í von um ást er vaki sönn
og veiti gleði’ í hvíld og önn.
Þú, Drottinn, verndar heilög heit
og hjónabandsins vígða reit.
Við eigum hvort hjá öðru skjól
og okkur hlýjar lífsins sól.
En annað ræðst af okkur tveim,
að efla, byggja lítinn heim.
Og heimur sá er okkar allt
er auðgar bæði hlýtt og svalt.
Því allt mitt líf þú átt með mér
og allt þitt líf á ég með þér.
Við lútum Kristi kærleikans,
við krjúpum hljóð í nafni hans
sem aldrei sínum börnum brást
en blessar þeirra tryggð og ást.
Ljóð: Hjálmar Jónsson við lag Marteins H. Friðrikssonar