Þann s.l. 19. desember afhenti Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, fyrrum sendiherra Íslands í Noregi, Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð 100.000 norskar krónur, eða rúmlega tvær milljónir íslenskra króna, frá íslenska söfnuðinum í Noregi. Er styrknum ætlað að renna til hjálparstarfs kirkjunnar á Íslandi fyrir jólin og vilja Íslendingar í Noregi með því leggja löndum sínum heima lið. Með styrknum fylgja hlýjar jólakveðjur. Styrkurinn er veittur í nafni Ólafíusjóðs, sem starfar á vegum íslenska safnaðarins og er Sigríður Dúna formaður sjóðsstjórnar. Lesa áfram …
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 20/12 2011
Mótettukór Hallgrímskirkju hefur frá stofnun sinni árið 1982 glatt tugþúsundir Íslendinga á aðventunni, og skipa jólatónleikar hans veglegan sess í ríkulegu tónleikahaldi í Reykjavík. Á þessum þrítugustu jólatónleikum Mótettukórsins verður Þóra Einarsdóttir sópransöngkona gestasöngvari með kórnum. Haldnir verða tvennir tónleikar í Hallgrímskirkju, miðvikudaginn 28. desember kl. 20 og fimmtudaginn 29. desember kl. 20 Lesa áfram …
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 20/12 2011
„Við viljum gefa gjöf sem gefur“ sagði Kristinn Gylfi Jónsson frá Brúneggjum þegar hann afhenti Jónasi Þ. Þórssyni framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar 250.000 krónur sem eiga að fara í að gefa fátækum fjölskyldum í Malaví og Úganda hænur. Upphæðin dugar fyrir 500 hænum sem nýtast munu um 150 fjölskyldum. Hæna er sannarlega gjöf sem heldur áfram að gefa. Lesa áfram …
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 19/12 2011
Í tilefni þess að meira en 25 ár eru liðin frá fyrstu útgáfu lagsins „Hjálpum þeim“ er komin út vönduð heildarútgáfa af laginu. Lagið hefur frá upphafi verið fjáröflun til neyðaraðstoðar. Allur ágóði af sölu nú rennur til neyðaraðstoðar á hungursvæðum A-Afríku á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Markmiðið með útgáfunni er einnig að salan verði að árlegum tekjustofni til verkefna stofnunarinnar. Útgáfan er að frumkvæði höfunda lagsins, Axels Einarssonar og Jóhanns G Jóhannssonar. Lesa áfram …
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 14/12 2011
Árrisulir Seltirningar og aðrir góðir gestir nutu morgunsins í Seltjarnarneskirkju, sunnudaginn 27. nóvember. Seltjarnarneskirkja er nú græn kirkja og var yfirlýsing því til staðfestingar undirrituð að viðstöddum kirkjugestum. Alþjóðlegt ár skóga 2011 var fyrirferðarmikið í ljóðum og hugvekju athafnarinnar og einnig voru afhentar viðurkenningar og verðlaun í samkeppninni “Af jörðu”. Samkeppnin snérist um tillögur að duftkerjum úr íslenskum við og dómnefnd átti úr vöndu að ráða því 28 tillögur bárust. Duftkerin eru öll til sýnis í Seltjarnarneskirkju fram til 11. desember
Lesa áfram á vef Seltjarnarneskirkju
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 8/12 2011
Á vegum Starfs- og leikmannskóla kirkjunnar í samstarfi við Reykjavíkurprófastsdæmi verður boðið upp á námskeið um lög og reglur Þjóðkirkjunnar 23. nóvember n.k. í Áskirkju. Á námskeiðinu verður farið yfir lagaumhverfi kirkjunnar og reglur er varða störf safnaðanna og starfsmanna þeirra. Sérstaklega verður fjallað um starfsmannamál, ráðningar og skimun starfsmanna o.fl. Einnig verður farið yfir þau mál sem fjallað verður um á Kirkjuþingi sem verður þá nýlokið. Lesa áfram …
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 14/11 2011
Kirkjuþing unga fólksins verður haldið í Grensáskirkju föstudaginn 11. nóvember. Yfirskrift þingsins er að þessu sinni „Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.“ Alls sitja 25 fulltrúar af öllu landinu á þinginu að þessu sinni, allt virkir þátttakendur í æskulýðsstarfi kirkjunnar. Þau munu ræða barna- og æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar.
Þrjú mál liggja fyrir þinginu. Þau varða aðstöðu barna- og æskulýðsstarfsins í kirkjunni, áhrif niðurskurðar á starfið og sýn ungs fólks á þennan þátt starfsins í kirkjunni á næstu árum. Lesa áfram …
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 10/11 2011
Á fræðslumorgni á kristniboðsdaginn fjallar sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson um kristniboð undir yfirskriftinni “Hvers vegna kristniboð? - vangaveltur og veruleiki”
Fræðslumorgnar hefjast kl. 10 og er boðið upp á kaffisopa og spjall að erindi loknu.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 10/11 2011
Sunnudaginn 6.nóvember kl. 11 verða lög Heimis Sindrasonar flutt í guðsþjónustu í Seltjarnarneskirkju. Heimir hefur samið fjölmörg lög og er eitt nýjasta lagið hans við Faðirvorið. Lesa áfram …
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 4/11 2011
Á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju sunnudaginn 6.nóvember, kl. 10.00, fjallar sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkrahúsprestur um andlegar og trúarlegar þarfir fólks sem þiggur líknarmeðferð.
Guðlaug Helga nefndir erindi sitt “Að lofa hvern dag sem kemur” . Kaffisopi og spjall að erindi loknu.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir, 4/11 2011